Aðalsíða
Upplýsingastefna
Áherslur í starfinu
Námskrá
Ársáætlun
Dagatal
Matseðlar
Valdar vefsíður
Furulundur
Lerkilundur
Birkilundur 
Grenilundur
Starfsfólk 
Veftré
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

Leikskólinn

Skólanámskrá 2004-5 yngri börn pdf skjal
Skólanámskrá 2004-5 eldri börn pdf skjal

Ársáætlun
2004 – 2005


Hlutverk Leikskólans er að búa börnum öruggt og lærdómsríkt umhverfi. Að stuðla að umburðarlyndi og víðsýni og að rækta tjáningar- og sköpunarmátt barna í þeim tilgangi að styrkja sjálfsmynd þeirra, öryggi og getu til að leysa mál sín á friðsamlegan hátt. Að efla siðgæðisvitund barna og leggja grundvöll að því að börn verði sjálfstæðir, hugsandi, virkir og ábyrgir þátttakendur í lýðræðisþjóðfélagi sem er í örri þróun.

Stefnumið:

Í leikskólanum leggur starfsfólk sig fram um að mæta þörfum barna og foreldra, faglegur metnaður, umbótastarf og endurmat er mikilvægur þáttur. Grundvöllur leikskólastarfsins er hugmyndafræði sem sótt er til Reggio Emilia og könnunarnáms. (Project Approach)

Í leikskólanum ríkja jákvæð samskipti, þar sem börn læra að bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum í andrúmslofti sem einkennist af hlýju og áhuga starfsfólks.

Börnin læra að lífríki náttúrunnar er viðkvæmt og við verðum öll að hugsa vel um umhverfi okkar. Þeim er gefinn kostur á að fást við ýmiss konar viðfangsefni og að þau geta komið með hugmyndir að viðfangsefnum sem skoðuð er ofan í kjölinn. Þannig læra þau að þau eru mikils megnug.

Árlega er gerð ársáætlun þar sem fram kemur hvernig unnið skal næsta ár og hver meginmarkmið þróunar – og nýbreytni verða það árið.

Markmið:

Að innleiða ákveðna starfsaðferð við að fylgjast með og skrá það sem gerist í leik barna
Að innleiða ákveðna starfsaðferð sem gefur börnunum kost á að velja viðfangsefni og á þann hátt gera sér grein fyrir mætti sínum og skoðunum.
Að gera viðhorfskannanir og safna upplýsingum til að finna mikilvæga hluta uppeldisstarfsins sem þarfnast úrbóta.
Að bregðast við ábendingum frá foreldrum.
Að virkja alla starfsmenn til að gera starf leikskólans betra fyrir börnin í samstarfi við ráðgjafa skólans.


Matsskýrsla
Mat á leikskólastarfi 2003 – 2004
Matsaðferðir


Til grundvallar sjálfsmati leikskólans á að leggja starfsmannahandbók, námskrá, markmið leikskólans og ársáætlun. Þetta var ekki gert í ár og verður tekið til athugunar á næsta ári.

Til grundvallar skýrslu liggur mat frá vorönn 2004

Viðhorfskönnun foreldra í ytra mati á leikskólanum. Mat starfsmanna samkvæmt ECERS kvarða og viðhorf starfsmanna til starfsaðferða á völdum sviðum starfsins. Matið fór fram á starfsmannafundi í vor.

Niðurstöður úr mati starfsmanna

Niðurstöður samkvæmt ECERS kvarða eru: hvað rými og búnað varðar þá telur starfsfólk á einni deild það ekki vera nægjanlega gott.
Þegar skoðuð er mismunandi menning er tvær deildar með lágt mat á þeim þætti og einnig stærðfræði, náttúru, vísindum og tilraunum sem og hlutverkaleik, sand og vatnsleikjum.
Annars kom matið á aðstöðu leikskólans vel út.

Niðurstöður úr athugun leikskólans á viðhorfi starfsmanna til vetrarskipulags og árangurs í starfi voru þessar:

Aðlögun starfsmenn voru mjög ánægðir með hvernig þessi þáttur gengur fyrir sig í húsinu.
Mat hvers starfsmanns á hvernig honum gangi að vinna samkvæmt starfsaðferð Reggio þá eru starfsmenn að meirihluta ánægðir með hvernig gengur og telja að vel gangi.
Viltu fyrirfram ákveðið þema? Þá eru tæpur helmingur sem vill það en rúmur helmingur sem vill það ekki.
Varðandi skráningu á starfinu þá eru 20% starfsmanna sem telur sig ekki vera að standa sig á því sviði, aðrir telja að það gangi vel eða sæmilega.
Þá var spurt um viðhorf starfsmanns til flutnings milli deilda og hvernig vinaþema- og vinaball gengu, þar voru starfsmenn ánægðir með framgang mála og tilbúnir að stærstum hluta til að flytjast milli deilda.
Þá spurðum við um þætti er snertu desembervinnuna og fengum skýr svör um að jólaundirbúningur byrjar að mati flestra 1. des.
Jólaball skal vera viku fyrr en síðast.
Upp

Viðhorfskönnun foreldra

Viðhorfskönnun var framkvæmd með lokaðri vefkönnun í maí á vegum L.R.
Þátttaka var 42 af um 90 foreldrum sem svöruðu.
Í upphafi var spurt ýmissa spurninga um stöðu barns í fjölskyldu, stöðu barns í leikskólanum o.fl.
Þá eru spurningar um álit foreldris á líðan barns í skólanum, upplýsingastreymi til foreldra, viðhorf til daglegra samskipta, fæðis og ýmiss konar þjónustu við barnið.
Þá er ennfremur skoðuð kynning á L.R. og viðhorf til sérkennslu í skólanum, námskrá skólans og ársáætlun og uppeldisstefnu skólans. Viðhorf til foreldraviðtala og funda eru könnuð og viðhorf til samskipta við deildastarfsmenn og leikskólastjóra.
Viðhorf til kynningar á nýju starfsfólki, skráningar og athuganir á námi barns og viðhorf til upplýsingagjafar um barnið til grunnskóla frá leikskóla.

Niðurstöður úr viðhorfskönnun foreldra

Viðhorf foreldra til leikskólans varðandi samskipti voru á þá lund að svarendur sögðu í 90% tilfella að þeir væri mjög eða frekar ánægðir.
Viðhorf til verkefna skólans, stefnu, skólanámskrár og ársáætlunar þá eru allir svarendur um stefnu eins og hún kemur fram í námskrá mjög eða frekar ánægðir. Skólanámskrá hefur ekki verið gefin út, enda svara foreldrar þeirri spurningu á þá lund að 62% segja nei eða veit ekki, 38% svara hins vegar já og hvers vegna er það?
Ársáætlun leikskólans þekkja 38%, hún var í fataklefa leikskólans í allan vetur eða þar til í júní og var þar til að foreldra ættu aðgang að henni. Hinir segjast ekki þekkja hana.
Varðandi upplýsingastreymi til foreldra þá eru hnökrar á einhverjum stöðum þar er hlutfall óánægðra foreldra um 17% svarenda.
Kynningar til foreldra um starfsemi Ráðgjafa- og sálfræðideildar og ráðgjafaþjónustu leikskóladeildar virðist vera mjög ábótavant þar telja 60% foreldra sig ekki hafa fengið neina kynningu á starfsemi þeirra deilda.
Varðandi kynningu á nýju starfsfólki þá eru tæp 50% foreldra frekar eða mjög óánægðir með hvernig staðið er að því.
Foreldrafundi og viðtöl eru foreldrar í rúmum 90% tilfella ánægðir eða frekar ánægðir með.
Hvort barn fær viðeigandi þjónustu ef það lendir í erfiðleikum telja um 22% foreldra svo ekki vera.

Lokaorð mats á síðasta ári
Leiðarljós:
Starfsfólk hefur Reggio starfsaðferðir og könnunarnám að leiðarljósi í starfi sínu með börnunum. Starfsfólk er að æfa sig í skráningum og að leggja áherslu á að hugmyndir komi frá börnunum. Foreldrar eru ánægðir með starfsemina og samskiptin við starfsfólk.
Leiðum að markmiðum Leikskólans er lýst í skólanámskrá og starfsmannahandbók.

Markmið:
Hver deild setur sér markmið varðandi barnahópinn, starfsmenn sammælast um deildarmarkmið á fundi í september.
Í skólanámskrá eru markmið um námsviðin og sett hafa verið markmið um skipulag og nýtingu á húsnæði.

Markmið fyrir leikskólann í heild varðar innleiðingu á skráningu og auknu samstarfi við foreldra um þemastarfið. Það er þátttöku foreldra í upplýsingaleit og kynningu barna til foreldra á þemaverkefni sínu.

Leiðir:
Í starfsmannahandbók Leikskólans eru vinnulýsingar um þætti sem skipta máli fyrir gæði starfsins í leikskólanum. Í vinnulýsingum kemur fram hvað gert er og hvers vegna, þar koma fram ýmsar hugmyndir að verkefnum, hver ber ábyrgð og hvert hlutverk starfsmanns er. Upp

Markmið ársáætlunar
Markmið út frá mati starfsmanna á síðasta ári og viðhorfskönnun foreldra.

Að vinna sjálfsmat skólaársins 2004 – 2005 út frá námskrá, markmiðum, ársáætlun og starfsmannahandbók.
Margmenning kynna sér leiðir í margmenningu leikskóla og taka í framhaldi ákvörðun um hvað við gerum.
Skoða stærðfræði í leikskólanum hvar og hvernig hún birtist.
Vísindi og tilraunir eru þáttur sem huga þarf að, það er framtíðarverkefni að skoða. Kynna okkur hvað gert er á því sviði og skilgreina hvað við gerum.
Leggja sterkari grunn að könnunarnámi og skráningu starfsins.
Innleiða bók barnsins og bók hópastarfsins og skráningar í þær.
Setja niður ákveðið þema í starfsáætlun skólans fyrir næsta ár en hafa jafnframt opið hvernig starfsfólk og börn vinna það, verkefnin koma þá fram í skráningum.

Foreldrasamstarf:
Þar ætlum við að gera átak í að kynna nýja starfsmenn, deildastjóri og starfsmenn deilda eru ábyrgir fyrir því, hver á sinni deild, leikskólastjóri sjái um kynningu í anddyri og á töflu í kaffistofu.
Við ætlum að gefa út skólanámskrá og auka upplýsingastreymi til foreldra um starfsemi leikskólans og forsendur hennar.
Heimasíða ætti að styðja við þennan þátt og verður athugað, hvernig hún getur komist á laggirnar.

Markmið þróunar og nýbreytnistarfs
Að innleiða bók barnsins, bók hópastarfsins og skráningu í þær.
Að styrkja starfsaðferð könnunarnáms og skoða hvernig og hvar hún birtist í starfinu.
Að styrkja börn í samræðum og sjálfsákvörðun, að þau finni að þeirra innlegg skiptir máli.

Spurningar sem þróunar- og nýbreytnistarfi er ætlað að svara eru:
1. Eykst vitneskja foreldra um starfsaðferðir leikskólans?
2. Eykst færni barna í að koma skoðun sinni á framfæri?
3. Eykst færni barna í að taka eigin ákvörðun?
4. Eykst færni barna til að eiga jákvæð samskipti? t.d. að setja sig í spor annarra.

Leiðir að markmiðum
Leiðir að markmiðum í uppeldi og kennslu barna koma fram í námskrá, í deildanámskrá og í starfsmannahandbók.

Markmiðum út frá niðurstöðum í mati; verður náð með því að starfsmenn sækja námskeið.
Efni á starfsmannafundum og skipulagsdegi verður valið með það að markmiði að auka þekkingu og hæfni starfsmanna í að greina þarfir barna og mæta þeim.
Einnig að þjálfa starfsmenn í að nota skólanámskrá og starfsmannahandbók Leikskólans við undirbúning og framkvæmd daglegrar vinnu.
Efni á námskeiðsdegi verður um einingakubba á haustönninni og á vorönn verður efnið um heilsueflingu og kemur frá Leikskólum Reykjavíkur. Námskeið á haustönn er fyrir árið 2004 en á vorönn árið 2005.

Viðhorfskannanir verða gerðar samkvæmt lýsingu í starfsmannahandbók.

Þjálfun starfsmanna verða samkvæmt lýsingu í starfsmannahandbók.


Foreldrasamstarf Upp

Markmið foreldrasamstarfs í Leikskólanum er að gera leikskólann betri fyrir börnin.

Leiðir; einu sinni í mánuði frá október fram í maí fundar stjórn foreldrafélags með leikskólanum. Á fundinum er kynnt það sem er á döfinni í leikskólanum, það sem hefur verið gert og foreldrar segja sína skoðun á því og koma með hugmyndir að úrbótum.
Foreldrafélagið stuðlar að auknum tengslum foreldra barna sem eru í Leikskólanum með því að taka þátt í jólaballi (jólagjöf), leikhúsferð og vorferð. Leikskólinn stuðlar að auknum tengslum foreldra barna með því að hafa móttöku og sýningu barna leikskólans á verkum sínum. Lúsían – opið hús – kynning barna á þemavinnu sinni. Fréttabréf kemur út 3 – 4 sinnum á ári, leikskólastjóri er ábyrgur fyrir því. Heimasíða, stefnt er að útgáfu hennar og verður hún þá uppfærð einu sinni í viku og verður leikskólastjóri og deildastjórar ábyrgir fyrir því.
Í fréttabréfi er sagt frá starfsemi leikskólans. Skóladagatal og útdráttur úr ársáætlun verður dreift til foreldra í fyrsta fréttabréfi skólaársins.
Skólanámskrá verður dreift um leið og hún verður tilbúin á haustdögum.
Foreldrafundur verður í október þar sem farið er yfir starf leikskólans og samstarf við foreldra, nýir fulltrúar í stjórn foreldrafélags kynntir og foreldrar og starfsmenn skiptast á skoðunum. Í apríl er fundur með foreldrum nýrra barna þar sem leikskólinn er kynntur og þjónusta L.R. og M. eru kynnt. Foreldraviðtöl eru tvisvar á ári í okt;/nóv, og í mars;/apríl. Þess utan eru viðtöl eftir þörfum leikskóla og foreldra.

Barnahópurinn
Næsta ár verða fjórir árgangar í skólanum. Á Furulundi og Lerkilundi verða tveggja og þriggja ára börn. Á Birkilundi og Grenilundi verða þriggja, fjögurra og fimm ára börn. Í september 2004 verða í leikskólanum 93 börn f.h. og 84 barn eftir kl:14.00. 48 drengir og 42 stúlkur. Börn sem áætlað er að njóti þjónustu RÁS og M. ánæsta ári eru 5 talsins.


Samstarf starfsfólks.
Stefna leikskólastjóra í starfsmannamálum er að það ríki heiðarleiki og jákvæð samskipti meðal starfsfólks.

Markmið fyrir árið 2004 – 2005
Að allir starfsmenn taki þátt í heilsueflingu L.R.
Að allir starfsmenn séu virkir í ákvarðanatöku og eftirfylgd þeirra og leggi sitt af mörkum til að gera leikskólann framúrskarandi fyrir börnin.
Að hvetja starfsmenn til að stunda líkamsrækt og minna þá á að nota rétta líkamsbeitingu við dagleg störf.
Að í starfsmannahópnum verði eftirtaldir þættir ræddir og ígrundaðir; sjálfræði, vinátta, gleði, nám og lífsleikni.

Leiðir; Í Leikskólanum verður lögð áhersla á skipulögð vinnubrögð í starfsmannastjórnun. Vinnulýsingar eru skráðar til að auðvelda starfsmönnum að þekkja þær kröfur sem til þeirra eru gerðar og tryggja að nýir starfsmenn fái þá þjálfun sem þeim er nauðsynleg, að símenntun sé skipulögð og að tekið sé á starfsmannavandamálum á skilvirkan hátt.

Almennar upplýsingar
Eins og fram kemur í skóladagatali er haldið upp á hefðbundna íslenska merkisdaga og ýmsa daga sem fest hafa rætur í skólanum.
Deildanámskrá segir til um starfið á deildinni sé það á einhvern hátt frábrugðið því sem segir í starfsmannahandbók og skólanámskrá.


Fylgiskjöl sem fara til leikskólaráðgjafa;
Skóladagatal allra árganga
Vikuskipulag beggja kjarna eldri og yngri
Nöfn og starfsheiti starfsmanna
Fundaáætlun
Efnisyfirlit skólanámskrár.
Yfirlit deildarnámskrár.
Fréttabréf leikskólaársins 2003-2004

Upp

 
 © 2004 Lilja Björk 15.01.06
Póstur
 
Nafn, netfang og sími