Upplýsingastefna
Leikskólans
- Leiðarljós
Leikskólinn
veiti foreldrum, viðskiptavinum og hugsanlegum
viðskiptavinum aðgengilegar upplýsingar
um starfsemi sína og tryggi jafnframt að
þeir eigi aðgang að skólanum
með sjónarmið sín.
Markmið
skólans eru:
að foreldrar eigi þess kost að fylgjast
með starfsemi leikskólans, stefnumiðum
og forsendum þeirra.
að
auðvelda foreldrum að koma ábendingum
sínum á framfæri og taka þátt
í stefnumótun leikskólans.
að
auka gagnkvæmt traust í samskiptum
foreldra og starfsmanna.
að
leikskólinn auki upplýsingagjöf
til foreldra. Heimasíða verði uppfærð
vikulega að lágmarki.
Uppfærsla
og ábyrgð.
Skólastjórnendur
bera ábyrgð á kynningu skólans
og upplýsingamiðlun, er lýtur
að starfsemi og þjónustu skólans.
Deildastjórar bera ábyrgð á
upplýsingamiðlun á starfi og þjónustu
sinnar deildar.
Fyrirspurn
um upplýsingastefnu Leikskóla Reykjavíkur?
Jakobína svarar.
Upplýsingastefna
Leikskóla Reykjavíkur er í mótun
og verður sett á blað fljótlega.
Ég bendi á upplýsingastefnu Reykjavíkurborgar,
sem Leikskólar Reykjavíkur munu taka
mið af við mótun sinnar upplýsingastefnu.
Kveðja, Jakobína
Upplýsingastefna
Reykjavíkurborgar
Leiðarljós
Reykjavíkurborg veiti áreiðanlegar
og aðgengilegar upplýsingar um starfsemi
sína og starfshætti og tryggi jafnframt
að borgarbúar eigi greiðan aðgang
að borgaryfirvöldum með sjónarmið
sín.
Meginmarkmið upplýsingastefnu Reykjavíkurborgar
er:
Að
almenningur og fjölmiðlar eigi þess
kost að fylgjast með stefnu borgaryfirvalda,
ákvörðunum þeirra og forsendum.
Að auðvelda almenningi að koma ábendingum
sínum á framfæri og taka þátt
í stefnumótun í borgarmálum.
Að auka gagnkvæmt traust í samskiptum
Reykjavíkurborgar og almennings.
Að ábyrgð og verkaskipting innan
borgarinnar í upplýsingamálum
sé skýr og auðveldi markvisst
og faglegt upplýsingastarf.
Að tryggja að starfsmenn hafi góða
þekkingu á starfsemi borgarinnar, stefnumiðum
borgaryfirvalda og góða heildarsýn
yfir starfsemi stofnana og fyrirtækja.
Að auðvelt sé að finna og þekkja
stofnanir og fyrirtæki Reykjavíkurborgar
og upplýsingar frá þeim.
Að stefna Reykjavíkurborgar í
upplýsingamálum og almannatengslum
sé skýr og öllum ljós;
kjörnum fulltrúum, stjórnendum,
starfsmönnum og almenningi.
Meira
um ábyrgð
í upplýsingamálum
|