16.08.04
Velkomin í leikskólann
og á nýju deildina
Nú tökum við
á móti nýjum börnum í leikskólann,
jafnframt eru börn að færast á milli deilda. Þessa
viku fara nokkur og svo restin í næstu viku. Nú erum
við að byrja aðlögun og höldum því
áfram fram í september. Væntanlega koma síðustu
börn inn þann 20 sept. ef allt gengur samkvæmt áætlun.
10.08.04
Velkomin til starfa
Nú bætast
við börn og starfsmenn úr fríum. Við höfum
jafnframt kvatt starfsmenn sem snúa sér að öðrum
starfsvettvangi. Finnur hefur nú hætt hjá okkur og
ætlar að fara að flakka um Ástralíu í
vetur. Nú er búið að ákveða hvernig hagað
verður málefnum um 5 ára börnin, gjaldfrjálst
verður milli 9.00 og 12.00 frá 1.09.04.
3.08.04
Velkomin aftur til starfa
Nú höfum við
aftur tekið til starfa eftir stutt en gott frí. Í dag
komu börn og starfsmenn til starfa örfáir að vísu
en allir glaðir og ánægðir og mikið var rætt
um atburði síðustu daga.
23.07.04
Framtíðin
Nú
sit ég enn með þeim stöllum og læri og læri.
en ekkert gerist, ég er þó búin að læra
um „target“.
17.07.04
Sumarfrí
Leikskólinn
hefur nú lokað fyrir sumarfrí og opnar aftur þann
3. ágúst.
9.07.2004
Sumarfrí
Starfsmenn
og börn tínast nú í leyfi einn af öðrum
og lokað verður 19. til 30. júlí. Vonandi geta allir
notið sumarleyfisins.
25.06.2004
Sumarhátíð
Sumarhátíð
í leikskólanum var haldin með pompi og pragt þann
24 júní. Veðrið setti strik í reikninginn.
Dagarnir fyrir sumarhátíð var sólin búin
að steikja mannskapinn en hátíðardaginn var hún
ekkert að þvælast fyrir
23.07.04
Verkefnavinna
Nú sit ég
með Distu og Fanný í Funaborg og er að reyna að
læra á Dreamweaver - tækið. Þetta hefst allt
með æfingunni, æfingin skapar meistarann.
11.06.2004
Fánar
Í dag komu skátar færandi hendi með íslenska
fánann að gjöf frá Þjóðhátíðarnefnd
Reykjavíkur. Þau þáðu fánann með
þökkum og sungu lagið „Öxar við ána“
með raust.
|