Matseðlar
2004 - September - Október
Matseðlar
fyrir hádegisverð eru samdir fyrir hvern
mánuð í senn og þeim fylgt eftir
eins og þeir eru. Það getur þó
alltaf komið upp sú staða að gera
þurfi breytingu á áður ákveðnum
matseðli. Við áskiljum okkur fullan rétt
til að gera breytingu með engum fyrirvara, vegna
þeirra aðstæðna sem uppi eru hverju
sinni.
Við höfum álit manneldisráðs
um hollustu og mataræði sem leiðarljós
og fyrirmynd.
Í
morgunverð er boðið upp á ýmiss
konar morgunkorn, súrmjólk, hafragraut
og ristað brauð. Um kl. 10:00 er svo börnum
boðinn ávaxtabiti eða grænmeti.
Í síðdegishressingu er boðið
upp á ýmiss konar brauð, hrökk-kex
ýmiss konar, kryddbrauð, ávexti
og eða grænmetisbita. Með þessu
er boðin léttmjólk, undanrenna,
eða ávaxtsafi og alltaf er vatn á
boðstólum.
Leitast er við að hafa máltíðir
dagsins úr öllum fæðuflokkum þannig
að t.d. ef boðið er upp á súpu
og brauð í hádeginu þá
er ekki brauð í boði síðdegis,
heldur kexmeti.
September
|