|
| |
Dagskipulag
- daglegt líf og athafnir
„Skipulag
og ákveðnar tímasetningar á
daglegum atburðum gefa leikskólastarfinu
festu og tryggja hæfilegan og samfelldan tíma
til leikja og skapandi starfs“, segir í
aðalnámskrá leikskóla (1999).
Dagskipulag er sniðið um daglegt líf
og athafnir barnsins í leikskólanum og
lýtur að því að fullnægja
líkamlegum og andlegum þörfum barnsins.
Með skipulaginu er búinn til rammi sem skapa
öryggistilfinningu hjá barninu og það
veit að hverju það gengur. Matur, söngur,
samvera.
Tími fyrir leik og starf þarf að tengjast
og það verður að vera rými
fyrir hið óvænta í leikskólastarfi,
alltaf sveigjanleiki.
Alltaf skal tryggja barni útiveru a.m.k. einu
sinni á dag.
|
| 7:30
- 8:00 |
Leikskólinn
opnar á Furulundi
Aðra vikuna opnar Gyða og Þorbjörg
kemur kl. 7:45 hina vikuna opnar Gústa og Anna
Margrét kemur kl. 7:45 |
| 8:00
- 10:00 |
Klukkan
8:00 er opnað á öllum deildum og börnin
velja sér verkefni til að leika sér
með, leiktíminn stendur til kl. 9:30 en þá
er samverustund í skipulaginu. Leiksvæði
eru á deildum og á gangi, farið er
að bjóða fram á gang kl. 9:30.
Eldri börnin hafa ganginn sem valsvæði
en á yngri deildum er börnum boðið
fram í smáhópum. Alltaf fylgir
starfsmaður af deild barnsins yngri börnum
en eldri börn eru á ganginum undir umsjá
starfsmanns af eldri deildum. Þau hafa meira val
um svæði og eru að velja sama svæði
á báðum deildum.
Morgunverður stendur frammi frá kl. 8:15
til kl. 8:45. Börnin hafa yfirleitt val um tvær
tegundir í morgunverð. Í lok samverustundar
er börnunum boðinn ávaxtabiti eða
grænmeti.
Samverustund er eins konar einbeitingarstund þar
sem fram fer sögulestur, frásögn, leikir,
framsaga o.fl.o.fl.
Þessa
stund viljum við hafa ótruflaða. |
| 10:00
- 11:55 |
Tíminn
frá kl. 10:00 til 11:30 er að jafnaði
notaður til vinnustundar og eru börnin þá
að vinna í hópum inni eða úti
í hreyfingu, þema, tónlist eða
myndlist.
Þar er viðfangsefnum og leik fléttað
saman í samvinnu barna og starfsmanna.
Um kl. 11:30 er farið að huga að frágangi
og undirbúningi fyrir máltíð
og hvíld. |
| 11:55
- 13:00 |
Á
þessum tíma dagsins fer fram næring
og hvíld.
Yngri börn sofna og sofa eftir þörfum
hvers og eins, róleg tónlist spiluð.
Eldri börnin hvíla sig við sögulestur
og/eða við hlustun á tónlist. |
| 13:00
- 14:50 |
Tíminn
frá kl. 13:00 til 14:50 er að jafnaði
notaður til vinnustundar og eru börnin þá
að vinna í hópum inni eða úti,
í hreyfingu, þema, tónlist eða
myndlist.
Þar er viðfangsefnum og leik fléttað
saman í samvinnu barna og starfsmanna.
Um kl. 14:30 er farið að huga að frágangi
og undirbúnigi fyrir síðdegishressingu.
|
| 14:50
- 17:00 |
Hér
kemur síðdegishressing og svo frjáls
og valinn leikur barnanna. Leiksvæði eru þau
sömu og að morgni en yfirleitt er gangi lokað
um kl. 16:30. Þá eru starfsmenn og börn
farin að tínast heim í notarlegheitin
þar eftir annríki dagsins. |
| 17:00
- 17:30 |
Á
Furulundi er síðustu börnum skilað.
Leikskólinn lokar kl. 17:30 og eiga þá
allir að hafa yfirgefið húsið.
Aðra vikuna loka Gyða og Jónína
en hina vikuna loka Gústa og Hulda. |
©
2004 Lilja Björk
15.01.06
|
|