|
Áhugasvið innan UT og kennslu, sérsvið, reynsla, starfsvettvangur. |
|
|
Fagmennska |
Nú hef ég töluvert velt fyrir mér náminu í vetur og hvert það muni leiða mig, hvernig það nýtist mér í framtíðinni? Smátt og smátt eykst þekkingin og hugmyndir um framtíðina og möguleikann sem skapast að námi loknu. Ég er ekki með fjöklbreytta reynslu í tölvuvinnu. Ég hef hins vegar áhuga á að efla þekkingu mína og samferðamanna minna á Tölvu og upplýsingatækni. Frekara nám er einnig kostur sem framtíðin ein getur borið vitni um. Ég sé mikla möguleika til hagnýtingar UT í kennslu fullorðinna. Nú eftir áramótin hef ég verið að grufla í Dreamwever forritinu og finnst það mjög áhugavert. Ég sé mikla möguleika á notkun forritsins í minni vinnu. Ég hef áhuga á að koma upp góðri vefsíðu með margvíslegt efni til fræðslu fyrir foreldra, gesti og gangandi líkt og nokkrir leikskólar hafa gert. Ég nefni Funaborg, Iðavelli , Sæborg Ég er að vinna hjá Leikskólum Reykjavíkur og þar er óplægður akur í upplýsingatækni. Vefsíður eru ekki komnar við marga leikskóla það er þó verið að tengja þá í gegnum mentor.is. Starfsmenn eru almennt ekki með mikla tölvukunnáttu. Nú í vetur var farið af stað með tölvunámskeið fyrir starfsmenn og þá var deildastjórum boðið að sækja námskeið aðrir eru eftir. Eftir munnlega könnun hjá nokkrum kollegum kom í ljós að þeir eru ekki mikið farnir að velta fyrir sér aðkomu barnanna að tölvunum, hvernig er hún boðin og hvaða forrit verða í boði. Þar sé ég tækifæri til að efla upplýsingatækni. Nú eru tölvur að koma inn á leikskólana sem tæki fyrir börnin og þá er spurningin hvernig verður hún hagnýtt. Ég hef skoðað þann möguleika í vetur og er betur undir það búin en ef ég hefði ekki farið í þetta nám. Ég ræddi við stjórnendur í Mánabrekku á Seltjarnarnesi um tölvuvæðingu og þróunarverkefni. Í vetur gerði ég stutta ritgerð um hagnýtingu tölvunnar í skólastarfi. Ég hef einnig áhuga á að kynna mér gagnvirk forrit fyrir börn, gerð forrita og hagnýtingu þeirra í skólastarfi. Bendi í því sambandi á Námsgagnastofnun sem fyrirmynd í gerð námsgagna á vef og því tengt. © 2003 Lilja Ólafsdóttir 5-sep-04 |