Ķ fjörunni į Fossi

 

Tvær þulur

Helgi Björnsson hefur sent vefnum tvær þulur sem Frišgeršur į Fossi fór oft meš fyrir hann žegar hann var í sveit hjį henni og Gunnari á árunum frį 1958 til 1966. Kunnum við honum bestu þakkir fyrir.

 

Sat ég undir fiskihlaða föður míns
átti ég að gæta bús og barna
svíns og sauða.
Menn komu að mér
ráku staf í hnakka mér
gjörðu mér svo mikinn skaða
þeir lögðu eld í bóndans hlaða
hlaðinn fór að brenna
og ég tók að renna
langt út í lönd
langt útí biskups lönd.
Biskup átti valið bú
hann gaf mér bæði uxa og kú
uxinn tók að vaxa og kýrin að mjólka.
Sankti María gaf mér sauð
síðan lá hún steindauð.
Önnur gaf mér freyja
sú kunni ekki að deyja
gott þótti mér útaf að líta
í skininu hvíta
og skikkunni grænni.
Konan mín í kofanum
býður mér til stofu
ég vil ei til stofu gá
heldur uppá hóla að hitta konu bónda.
Kona bónda gekk til brunns
lét hún ganga hettuna smettuna
dinga litla dimma dó
nú eru dauðir Egill og Kegill í skógi.

 

Sat ég undir stofuvegg
strauk ég mitt gullskegg
leit ég til himna
sá ég þar tólf hesta renna
tók ég þann blakka
reið honum til Stakka
hvað gerði goði goði
slátraði nauti sínu
hvað gaf hann mér
lifur og lungu
lagast ekki neðanfrá
ég brenndi mig á tungu.
Fór ég ofan til sjávar og saltaði netjur
kom þar rönn rýtandi
með sína tönn trýtandi
tröll tók af mér heiti
heita steik og feiti.
Kom ég þar að kveldi
er kerling sat við eldinn
tók hún sinn pinginn
ætlaði mig að stinga
ég tók lurkinn langa
lagði kann undir kerlingarvanga
ekki mátti hún gott orðið heyra
fyrir sínu kerlingareyra
og látið ekki skeggmanninn heyra.

Þessi þula er sú sama og Friðgerður fer með í
upptöku Kristjáns Benediktssonar og finna
hér á vefnum.

 

|  Umsjónarmašur vefsins   |
| Gušmundur Hafsteinsson |