Örnefni skráð af Hafsteini Guðmundssyni, sem átti þar heima frá þriggja ára aldri til tuttugu og þriggja ára (f. 4.2.1912).
Bærinn er í daglegu tali kallaður Foss og og er það nafn notað hér á eftir.
Fossgjá (1) heitir skora í fjallið fyrir ofan bæinn. Í fjörunni þar beint fyrir neðan er Vörin (2). Landamerkin milli Foss og Múla er bein lína úr gjánni í innri vararvegg. Skerið fyrir utan (vestan) Vörina heitir Bæjarsker (3). Fremst á bökkunum í túninu sér enn fyrir litlu tóftarbroti, það heitir Bænhústóft (4). Þaðan hefur sést vel til allra mannaferða, því allir fóru með sjónum þangað til vegur var lagður um sveitina. Slík hús á vegamótum munu líka hafa verið kölluð krosshús. Stutt fyrir utan Bænhústóftina er dálítið skarð í bakkana, það heitir Götuskarð (5). Þar var vegurinn úr fjörunni heim að bænum. Kúalaut (6) heitir djúp laut í hólana fyrir ofan bæinn Nokkru utar er Djúpalaut (7). Yst á hólunum er Stekkurinn (8), þar er enn nokkuð vel uppistandandi fjárrétt, hlaðin úr grjóti. Fráfærur munu hafa lagst hér niður snemma á öðrum áratug þessarar aldar.
Í túninu stutt fyrir innan (austan) bæinn er klettur sem heitir Álfkonuberg (9). Hann er utan í hól og nær gras fram á brún klettsins. Uppi á Álfkonuberginu má aldrei slá (álagablettur).
Í gegnum túnið renna tveir lækir, annar rétt fyrir innan bæinn, hann heitir Bæjarlækur (10), hinn utar í túninu og heitir Hesthúslækur (11). Ysti hluti gamla túnsins frá Hesthúslæk heitir Hesthústún (12). Rétt fyrir utan túnið rennur lækur sem heitir Þvottalækur (13). Þar sem hann fellur fram af bökkunum er klettur framan í bökkunum, sem heitir Altarisberg (14). Á þessum slóðum ganga nokkrir bunguvaxnir hólar fram úr bökkunum. Þeir heita Enni (ft.)(15).
Við enda hólanna er Hólendalækurinn (16). Stutt þar fyrir utan er hryggur (gömul uppgróin skriða) sem heitir Skjólhryggur (17). Nokkuð þar fyrir utan eru Hólhúsin (18), það er sléttur blettur, nokkuð hálendari en landið sem nær er sjónum. Þar telja sumir að bærinn á Fossi hafi staðið til forna, meðan næsti bær fyrir utan Foss, sem er Litlahlíð, var enn óskipt úr Foss landareign.
Þegar faðir minn, Guðmundur Jónsson, keypti Foss og flutti þangað 1915, var þar fyrir húsmaður sem Guðjón hét Jónsson. Faðir minn leyfði honum að byggja sér bæ og fjárhús á Hólhúsunum. Þar bjó Guðjón með fjölskyldu sinni í nokkur ár. Leifarnar af þeim húsum sjást enn.
Fyrir neðan brekkuna á Hólhúsunum stendur nærri mannhæðarhár strýtumyndaður grár steinn, sem heitir Steinka (19). Niður undan Hólhúsunum er Grjótnesið (oft nefnt Grjóttnes)(20), sem gengur lítið eitt fram í sjóinn. Hóllinn fyrir ofan það heitir Grjótneshóll (21). Nú er tekið úr Grjótneshólnum steypuefni og ofaníburður í vegi. Þar hafa fundist rostungsbein. Í fjörunni stutt fyrir innan Grjótnes, alveg uppi undir graslendinu, var lítill klettadrangur, sem hét Þambari (22). Hann er nú brotinn og efri hluti hans horfinn. Í mýrunum milli Hólhúsanna og Litluhlíðar er stór steinn sem heitir Grásteinn (23) og mýrarnar hétu Grásteinsmýrar (24), nú er þar tún. Neðsti hluti þeirra hét Naustamýri (25).
Grásteinn og þrír aðrir stórir steinar í beinni línu í hlíðinni upp af honum eru landamerkin milli Foss og Litluhlíðar. Í klettunum fyrir ofan þessa bæi báða eru tvær hillur nokkuð grösugar, heitir sú neðri Lambhilla (26), en sú efri Festarhilla (27). Þaðan var stundum sigið til að bjarga kindum úr svelti. Fyrir neðan innri enda Lambhillunnar eru nokkrir stakir klettar, þar af einn strýtumyndaður, þeir heita Kerlingar (28).
Hæsti tindur fjallsins fyrir ofan Foss heitir Hreppshyrna (29). Lítið eitt vestar, uppi á fjallinu, er sléttur grasblettur, sem heitir Hreppsflöt (30), og hlíðin milli þeirra heitir Hreppur (31).
Geta má þess að foss er enginn í Foss landareign, en áin fyrir utan Litluhlíð heitir Fossá og dalurinn sem hún kemur úr Fossdalur, og bendir það til þess að upphaflega hafi þessar tvær jarðir verið ein jörð.
Skrifað í júlí 1977.
Við þessa skrásetningu hef ég fengið nokkrar góðar ábendingar frá Gunnari bróður mínum, sem nú býr á Fossi.
H.G.
Viðbót
Skráð eftir frásögn Hafsteins Guðmundssonar 12. apríl 1999:
Fyrir innan Hólhúsin kom smálækur undan hlíðinni og rann í mörgum hlykkjum niður mýrina. Hann var kallaður Krókódíll (32) þegar Hafsteinn átti heima á Fossi. Lækurinn mun nú löngu horfinn vegna þurrkunar og túnræktar.
Annar lækur og stærri kom undan brekkunni niður af Hólhúsunum og var vatnsból fyrir býlið þar. Sá lækur er líklega til enn. Nokkuð bratt var að bera vatnið upp í húsin.
Örnefnastofnun, 7. maí 1999
Jónína Hafsteinsdóttir
Örnefni á Skjaldvararfossi |
|||
Altarisberg (14) |
Fossgjá (1) |
Hólendalækur (16) |
Lambhilla (26) |
Foss aš vetrarlagi
Kolaveišar