Gamla sundlaugin í Mórudal
Mörg okkar kannast við gömlu laugina í Mórudal. Sum af afspurn, önnur af myndum en þeim fer víst fækkandi sem hafa synt í henni. Umsjónarmaður vefsins telur sig muna eftir að hafa komið að lauginni fyrir rúmlega hálfri öld og jafnvel brugðið sér í bað, er þó ekki viss um það. En það er nokkuð víst að nú er orðið nokkuð langt síðan nokkur hefur synt þarna því lauginni hefur því miður ekki verið haldið við.
Í bók Kristjáns á Breiðalæk, "Sú kemur tíð", er dálítið fjallað um laugina og þar kemur fram að hún muni hafa verið gerð árið 1903 og næstu áratugi var hún notuð til sundkennslu. Á myndinni hér fyrir neðan, sem m.a. hefur birst í bók Kristjáns, má sjá sundkennslu í lauginni, líklega sumarið 1938.

Sundkennarinn er Friðgeir Guðmundsson frá Fossi, þá nýkominn af íþróttaskóla í Haukadal. Kristján á Breiðalæk stendur hjá honum á bakkanum en ekki er vitað um alla sem í lauginni eru. Þó er vitað að við bakkann, næst Kristjáni, eru Björg systir hans og Sigga á Vaðli. Umsjónarmaður telur sig muna að Hafsteinn hafi þekkt þarna þá bræður sína Gunnar og Lúðvík og er Gunnar nokkuð auðþekktur, annar frá vinstri. Ef einhverjir telja sig vita meira um þessa mynd og fólkið á henni væri sú vitneskja vel þegin.
Hætt var að nota laugina til sundkennslu þegar ný laug kom til sögunnar árið 1948 og nú er hún ekki svipur hjá sjón eins og sjá má á myndinni hér til hliðar sem Jónína Hafsteinsdóttir tók í júlí 1997. Laugarveggirnir standa að vísu en laugin er hálffull af jarðvegi og gróðri og vatnið rétt dugir til að Ármann Einarsson, sem lærði að synda hér á sínum tíma, geti fengið sér notalegt fótabað.
Foss að vetrarlagi
Kolaveiðar