"Krossferð" í Hagakirkjugarð
Umhyggjusamir sveitungar höfðu orð á því í vetur að þeim þætti leiði Gunnars á Fossi í Hagakirkjugarði lítill sómi sýndur. Viðbrögð ættingjanna urðu þau að ákveðið var að kaupa kross og setja hann á leiðið þrátt fyrir að aðrir hefðu lýst því yfir að þeir myndu setja þar legstein. Krossinn var keyptur og nokkrir ættingjar sammæltust um að fara með hann vestur og koma honum fyrir á sínum stað helgina 17.-19. júní.
Úr þessu varð hið ágætasta ættarmót þótt smátt væri í sniðum, aðeins 10 þátttakendur. Hópurinn kom sér fyrir á ágætu tjaldstæði rétt ofan við Flókalund. Barðaströndin skartaði sínu fegursta þótt aðkoman að Fossi væri reyndar ömurlegri en nokkru sinni fyrr og jafnvel bjartsýnustu menn hljóti nú að fara að gefa upp vonina um að hægt verði að bjarga bænum frá algjörri eyðileggingu. Fólk fann sér ýmislegt til skemmtunar. Að kvöldi þjóðhátíðardagsins var sameiginleg grillmáltíð í nýþjóðlegum stíl. Laugardaginn nýtti hver eins og hugurinn girntist, svo sem í öku-, göngu- eða sundferðir, en deginum lauk með sameiginlegri máltíð í Flókalundi. Á sunnudag hélt hver til síns heima og hefur ekki annað frést en að heimferðir hafi gengið vel þó að hvassviðri væri nokkuð til leiðinda.
Nokkrar myndir voru teknar í ferðinni og dálítið sýnishorn þeirra má sjá með því að smella hér eða á litlu myndina hér fyrir ofan. Þeir, sem luma á góðum myndum úr ferðinni, eru hvattir til að koma þeim til umsjónarmanns svo hægt verði að leyfa fleirum að njóta þeirra!
Foss aš vetrarlagi
Kolaveišar