Skjaldvararfoss - gestabók
Upplýsingar: |
113 skráningar á 1 síðu(m)
|
| 113 |
Dagsetning: 2007-09-05 12:58:26 Ólína Kristín Jónsdóttir ( olinak@vortex.is / engin heimasíða) skrifaði: Sæl öll sömul Það er alltaf jafn gaman að kíkja hér inn. Komið mikið af áhugaverðu efni. Verð að segja að þessi síða er að standa sig með eindæmum vel! Varðandi ættarmót man ég bara hver er í nefndinni af ömmu fólki og það er Gauti, hitti hann í sumar og veit að hann man eftir þessu en hann er varla aldursforseti .... unglingur eins og ég hehe Er eins og hinir farin að hlakka til að mæta á ættarmót, það má bara ekki vera 20-22. júní (ef einhver skyldi taka mark á mér, þá verður mín fjölskylda vænatanlega öll í brúðkaupi í Reykhólasveitinni) Bestu kveðjur til allra, Ólína |
|
| 112 |
Dagsetning: 2007-07-30 00:19:29 Rannveig Berhelsen ( rannbert@internet.is / http://www.simnet.is/finn) skrifaði: Ég rakst á síðuna þína fyrir tilviljun. Sá að þú nefndir þar langaafa minn Nikolaj Sofus Berthelsen málara og langömmu Jórunni Jónsdóttir. Ég á pistil um langafa. þau eignuðust 6 börn. Soffíu sem var ljósmóðir, Jóhönnu,hún var ógift, Ragnheiði, hún lærði að mála hjá föður sínum og lærði húsgagnasmíði, Helga giftist og bjó í Danmerkur, Jón sjómaður, drukknaði, og Sólveig sem segir í pislinum af hafi ekki gengið heill til skógar og fluttist austur í sveit. Faðir minn er sonur Jóhönnu og heitir í höfuð á langafa mínum Nikolaj Sofus Berthelsen. Faðir minn er 93 ára og er enn lifandi. Ef þú hefur áhuga á þessum pisli þá er sjálfsagt að senda þér hann. Ég læt e-mailið mitt fylgja svo þú getur látið mig vita. Bestur kveðjur Rannveig Berthelsen |
|
| 111 |
Dagsetning: 2007-06-21 14:41:01 Nína ( ninahafst@vortex.is / engin heimasíða) skrifaði: Ættarmót bar á góma í afmælisveislu á dögunum og einhver spurði hver ætti að kalla nefndina saman, hvort það væri sá elsti. Það væri ágæt hugmynd að skikka aldursforsetann til þess og mætti alveg fara að hnippa í hann. Vonandi man hann sjálfur að hann er í nefndinni, ef ekki þarf að segja honum það! Það var einn nefndarmeðlimur í umræddu afmæli og veit að hann er í nefnd en hann er ekki aldursforseti (nema talið sé neðan frá). |
|
| 110 |
Dagsetning: 2007-06-20 23:48:07 Særún ( runir@internet.is / http://blog.central.is/runir) skrifaði: Bestu sumarkveðjur til allra í ættinni. Mikið hlakka ég til ættarmótsins sem á að vera næsta sumar. Eru allir nefndarmeðlimir með það á hreinu??? Svo má náttúrlega alltaf hittast óformlega og mikið væri ég til í útilegu vestur í sumar. Sjáumst vonandi sem fyrst |
|
| 109 |
Dagsetning: 2007-05-09 14:38:54 Gerður Hafsteinsdóttir ( gerdur@tinna.is / engin heimasíða) skrifaði: Sæl öll sömul og gleðilegt sumar! Ég hef ekki farið inn á síðuna nokkuð lengi svo það er nú kominn tími til. Alltaf gaman að því. Ég er ákveðin í að fara vestur í sumar, sennilega verður það í ágúst, það væri gaman ef fleiri bættust í hópinn, það var svo gaman þegar við fórum í krossferðina. Gaman að heyra frá þér Villi, kærar kveðjur til þín og Lárusar, við vorum saman smá tíma á Fossi, sennilega sumarið '71, ég var minnir mig 13 ára og þið aðeins yngri. Til hamingju með afmælið um daginn Birna mín... ég næ þér bráðum. Kveðja, Gerður |
|
| 108 |
Dagsetning: 2007-05-02 00:00:02 Vilhjálmur Húnfjörð Vilhjálmsson ( villihf@simnet.is / engin heimasíða) skrifaði: Gaman að rekast á þessa síðu á netinu var í sveit hjá gunna nokur sumur og líka bræðurnir kv villi |
|
| 107 |
Dagsetning: 2007-04-20 08:21:34 Nína ( ninahafst@vortex.is / engin heimasíða) skrifaði: Gleðilegt sumar, kæra frændfólk. Vonandi getum við sem flest gert eitthvað skemmtilegt á komandi sumri. Og af því að ég var við fermingu Unnar Pétursdóttur í gær óska ég henni og öðrum fermingarbörnum ættarinnar innilega til hamingju. Bestu kveðjur. |
|
| 106 |
Dagsetning: 2007-03-21 17:41:31 Hrefna Katrín Guðmundsdóttir ( ekkert netfang / engin heimasíða) skrifaði: Hæ hæ öll sömul :) Ákvað bara að kvitta fyrir heimsóknina á síðuna, langt síðan ég hef gert það. Bestu kveðjur til ykkar allra :) |
|
| 105 |
Dagsetning: 2007-03-01 19:44:55 Rakel Guðmundsdóttir ( rakelgu@hlidaskoli.is / engin heimasíða) skrifaði: Svo eru aftur á móti fastagestir í bókinni.....kvitta alltaf þegar ég hef lesið eitthvað nýtt á síðunni. Kveðja, Rakel. |
|
| 104 |
Dagsetning: 2007-02-26 08:40:51 Nína ( ninahafst@vortex.is / engin heimasíða) skrifaði: Alltaf gaman þegar einhver skrifar í gestabókina, það gerist bara of sjaldan! |
|
| 103 |
Dagsetning: 2007-02-25 15:21:24 Unnur Helga Jónsdóttir ( ekkert netfang / engin heimasíða) skrifaði: Ætlaði bara að kvitta fyrir komu mína... ... kem hérna skammarlega sjaldan en finnst það alltaf jafn gaman... Mjög gott framtak! |
|
| 102 |
Dagsetning: 2007-02-15 21:45:15 Anna M. Gunnarsdóttir ( amargunn@mi.is / engin heimasíða) skrifaði: Fór inn á vefinn ykkar...Glæsilegur! Datt á bólakaf í nánast allt í "Annar fróðleikur". Hef haft mjög gaman af að lesa þetta. Kem til með að fara aftur og aftur og aft..inn á vefinn. Takk kærlega fyrir mig. Bestu kveðjur, Anna M.Gunnarsd. (Þorsteinssonar frá Litlu-Hlíð). |
|
| 101 |
Dagsetning: 2007-01-22 09:59:32 Birna lúðvíksdóttir ( biddalu@hive.is / engin heimasíða) skrifaði: Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla og vona að nýja árið verði ykkur farsælt.Kær kveðja Birna |
|
| 100 |
Dagsetning: 2006-12-31 01:51:33 Særún Ármannsdóttir ( runir@internet.is / http://blog.central.is/runir) skrifaði: Flott að vera númer 100 (eru engin verðlaun???!!!)og ágætt að klára árið með þeirri færslu. Ætla bara að óska ykkur öllum gleðilegs árs og þakka ykkur fyrir gamla árið. Er löngu farin að hlakka til næsta ættarmóts sem hlýtur að styttast í. |
|
| 99 |
Dagsetning: 2006-12-22 09:51:30 Nína ( ninahafst@vortex.is / engin heimasíða) skrifaði: Kæra frændfólk! Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og að ykkur gangi allt í haginn á nýju ári. Vonandi verðum við dugleg að halda sambandinu okkar á milli lifandi - reyndar eru bloggsíður ættingjanna ágætur vettvangur svo langt sem þær ná og segja okkur hinum heilmikið um hvað verið er að bardúsa á bæjunum. Bestu kveðjur, Nína |
|
| 98 |
Dagsetning: 2006-10-23 16:53:05 Ólína Kristín Jónsdóttir ( ekkert netfang / engin heimasíða) skrifaði: Best að auglýsa auglýsinguna mína... endilega kíkið inn á liðinn auglýsingar. Það er ball hjá Barðstrendingafélaginu fram undan og tilvalið að hitta fólk að vestan ;o) |
|
| 97 |
Dagsetning: 2006-10-02 22:01:18 Rakel Guðmundsdóttir ( rakelgu@hlidaskoli.is / engin heimasíða) skrifaði: Fallegt ljóð sem hefur verið ort til langömmu! Það er ekkert mál að búa til góða veislu...það verður bara einhver að taka af skarið!! "Hver og hver og vill og verður, bannað að svíkja....?" |
|
| 96 |
Dagsetning: 2006-09-28 12:50:08 Ólína Kristín Jónsdóttir ( olinak@vortex.is / http://blog.central.is/olinak) skrifaði: bara að láta vita af ferðum mínum hér. Gaman hvað það er alltaf að detta inn nýtt efni sem er áhugavert að lesa. Talandi um að hittast. Móðurfólkið mitt heldur ættarmót á þriggja ári fresti og þar fyrir utan hittist það á hverju hausti, leigir sal og svo koma allir með einhvern mat með sér og það er búið til hlaðborð. Alltaf svaka veisla og mikið fjör :o) |
|
| 95 |
Dagsetning: 2006-09-11 23:25:59 Særún ( runir@internet.is / http://blog.central.is/runir) skrifaði: Æi já ég er sammála eigum við ekki að gera eitthvað, Birna (eða einhver annar) láttu þér detta eitthvað í hug og segðu okkur hinum hvar og hvenær við eigum að mæta. Þurfum ekkert að bíða í 4 ár með að hittast og skemmta okkur. |
|
| 94 |
Dagsetning: 2006-07-14 23:38:46 Nína ( ninahafst@vortex.is / engin heimasíða) skrifaði: Gaman að heyra í einhverjum! Birna mín, ég er hrædd um að það séu heil tvö ár í næsta ættarmót, það eru tvö ár síðan við vorum saman á Skildi og miðað við að fjögur ár séu á milli er þetta svona (held ég geti enn lagt saman tvo og tvo). En auðvitað mætti gera eitthvað í millitíðinni til að hittast, um að gera að láta sér detta eitthvað sniðugt í hug. Kveðja, Nína |
|
| 93 |
Dagsetning: 2006-07-13 23:55:35 Birna Lúðvíksdóttir ( biddalu@isl.is / engin heimasíða) skrifaði: Hæ hæ þið öll! Er farin að sakna ykkar allra,styttist ekki í næsta ættarmót hjá okkur? Vona að þið hafið öll mjög gott. Kær kveðja Birna |
|
| 92 |
Dagsetning: 2006-05-28 21:29:17 Rakel Guðmundsdóttir ( rakelgu@hlidaskoli.is / engin heimasíða) skrifaði: Fróðlegt að lesa þessa gömlu reikninga sem birtast nú á síðunni! Við lesturinn er skemmtilegt að hafa í huga hvað lítið er um styttingar og staðlaðan texta, sem gerir það að verkum að hann virkar einhvernveginn persónulegri en gerist í dag! |
|
| 91 |
Dagsetning: 2006-05-22 16:24:29 Rebekka Ómars ( rebekka@toppnet.is / engin heimasíða) skrifaði: Heil og sæl öll Var að vafra...og kíkti við. Gleðilegt sumar allir!........(þó það fari lítið fyrir því núna í þessu kuldakasti 22.05´06) Er á leið til Olgu móðursystur eftir 9 daga og vonast til að veðrið verði aðeins skárra í Málmey. |
|
| 90 |
Dagsetning: 2006-04-20 11:40:02 Nína ( ninahafst@vortex.is / engin heimasíða) skrifaði: Gleðilegt sumar, kæra frændfólk og aðrir gestir! Vonandi látið þið heyra eitthvað frá ykkur hér í sumar (þótt flestir duglegustu skrifarnir séu komnir með bloggsíður). Bestu kveðjur, Nína |
|
| 89 |
Dagsetning: 2006-04-10 21:21:15 Rakel Guðmundsdóttir ( rakelgu@hlidaskoli.is / http://blog.central.is/rakelgu) skrifaði: Hér ætti það að birtast og nú verður maður bara að vera duglegur eða hvað? Páskakveðja til allra sem þetta lesa, og borðið bara nógu mikið af eggjunum, þetta er nú bara einu sinni á ári...! |
|
| 88 |
Dagsetning: 2006-04-07 16:36:48 Særún ( runir@internet.is / http://blog.central.is/runir) skrifaði: Og hvar er bloggið þitt, Rakel? Deila með hinum annars er ekkert gaman að blogga. Gleðilega páska og ekki borða yfir ykkur af eggjunum góðu. Kveðja Særún |
|
| 87 |
Dagsetning: 2006-04-05 21:56:47 Rakel Guðmundsdóttir ( rakelgu@hlidaskoli.is / engin heimasíða) skrifaði: Jú Særún, ég svara orðið reglulega! Prófaði meira að segja að stofna bloggsíðu eftir að ég rataði á þína!!! Kv. Rakel. |
|
| 86 |
Dagsetning: 2006-03-31 18:12:12 Særún ( runir@internet.is / http://blog.central.is/runir) skrifaði: Já hvernig er þetta með ykkur þarna úti eru allir hættir að skrifa í gestabókina. Annars er ég eins og allir hinir farin að blogga svo ef þið viljið fylgjast með mér í daglega lífinu þá endilega kíkið við á síðunni minni og munið eftir að kvitta fyrir heimsóknina. Annars bara bestu kveðjur til ykkar allra. Særún |
|
| 85 |
Dagsetning: 2006-03-27 21:14:25 Nína ( ninahafst@vortex.is / engin heimasíða) skrifaði: Sæl verið þið. Það er svo langt síðan nokkur hefur skrifað í gestabók að þetta gengur nú bara ekki lengur! Mér datt þess vegna í hug að segja ykkur frá frábærum tónleikum sem verða í Grafarvogskirkju nú á miðvikudagskvöldið 29. mars kl. 20.30. Þá verður flutt Brynjólfmessa eftir Gunnar Þórðarson (þið vitið, Gunna Þórðar í Hljómum sem gerir öll flottu dægurlögin). Þarna koma fram kórar, um 150 manns alls og 25 manna hljómsveit og einsöngvarar, Diddú og Jóhann Friðgeir. Það er líka ein rödd í kórunum úr ættinni okkar, hún Ólöf Pétursdóttir, ömmustelpan mín svo þetta kemur okkur svolítið við. Verkið var flutt í Skálholti í gærkvöld og mér bauðst far þangað og sagði auðvitað "jú, takk" og sé ekki eftir því. Þetta er mjög fallegt verk og flutningurinn glæsilegur, og það er aldrei að vita nema ég fari aftur á miðvikudaginn. Þetta hefði kannski alveg eins mátt skrifast sem auglýsing, en hún hefði orðið nokkuð löng svo mér fannst alveg eins gott að skrifa bara hér. Bestu kveðjur til ykkar allra, Nína |
|
| 84 |
Dagsetning: 2006-02-19 22:26:24 Rakel Guðmundsdóttir ( rakelgu@hlidaskoli.is / engin heimasíða) skrifaði: Gaman að sjá þessar myndir og fá þennan fróðleik um ættarslóðirnar. Mikilvægt fyrir yngri kynslóðina... veit þó ekki hversu lengi maður má telja sig til hennar!! Kveðja, Rakel. |
|
| 83 |
Dagsetning: 2006-02-01 23:12:03 Jóhann Berthelsen ( icebert80@simnet.is / engin heimasíða) skrifaði: halló ég fan þesa síðu á leit.is og fann hana undir leitinni Berthelsen. |
|
| 82 |
Dagsetning: 2006-01-10 13:40:15 Bryndís ( leiftur@hotmail.com / engin heimasíða) skrifaði: Kæru ættingjar og vinir. Ég og mín fjölskylda óskum ykkur öllum gleðilegs árs með þökk fyrir skemmtilegar samverustundir á liðnum árum. Við erum strax farin að hlakka til næsta ættarmóts :) Kveðja, Bryndís |
|
| 81 |
Dagsetning: 2006-01-09 23:35:48 Rakel Guðmundsdóttir ( rakelgu@hlidaskoli.is / engin heimasíða) skrifaði: Sæl öllsömul og gleðilegt ár! Ég hitti Særúnu um helgina og við vorum að tala um að vera duglegri að skrifa í gestabókina!! Við kíkjum auðvitað mun oftar á vefinn en gestabókin segir til um. Látum heyra frá okkur annað slagið..! Kveðja Rakel. |
|
| 80 |
Dagsetning: 2005-12-26 13:17:48 Nína ( ninahafst@vortex.is / engin heimasíða) skrifaði: Ágæta frændfólk, nær og fjær! Allur hópurinn fær bestu jóla- og nýársóskir frá okkur í Nökkvavogi 31 með þökk fyrir skemmtilegar samverustundir á liðnum árum. Verum nú dugleg að halda sambandi þegar við höfum þennan ágæta vettvang til þess. Látið endilega heyra frá ykkur öðru hvoru. Bestu kveðjur, Nína |
|
| 79 |
Dagsetning: 2005-12-14 22:41:58 Hrefna Katrín ( hrefgud@hi.is / http://sinfonia.islandssimi.is/) skrifaði: Mig langar að benda ykkur á skemmtilega tónleika Sinfóníuhljómsveitar áhugamanna og Kvennakórs Garðabæjar í Seltjarnarneskirkju laugardaginn 17. desember kl. 17 og í Vídalínskirkju sunnudaginn 18. desember kl. 17. Við Nonni erum bæði að spila! Nánari upplýsingar um tónleikana fást á vefsíðunni: http://sinfonia.islandssimi.is. Aðgöngumiðar fást í forsölu hjá mér! |
|
| 78 |
Dagsetning: 2005-11-28 23:43:16 Nína ( ninahafst@vortex.is / engin heimasíða) skrifaði: Sæl, Bryndís. Það uppgötvaðist í haust að vefurinn okkar er ekki lokaður eins og hann var lengi vel, þ.e. hann fannst ekki á leitarvélum. Nú eru þær hins vegar búnar að snuðra hann uppi og þá kom upp smávegis umræða um hvernig ætti að bregðast við því: Prenta út efnið og pakka því niður og loka svo vefnum, koma upp lykilorði sem aðeins "útvaldir" fengju eða hafa hann bara opinn og láta gott heita þó ýmsir aðrir en við gætu skoðað hann. Ég get fullyrt að umsjónarmaður vefsins er á þeirri skoðun að hafa hann eins og hann hefur verið, bara gæta þess jafnvel enn betur en áður að engar upplýsingar sem talist geti viðkvæmar fari þar inn. Þetta með "skelfilegar" myndir er nú matsatriði - maður er nú sjaldnast dómbær um sjálfan sig þegar að því kemur og þú ert örugglega ekki ein um að vera kannski pínulítið hallærisleg á mynd ef grannt er skoðað!!! Bestu kveðjur, Nína |
|
| 77 |
Dagsetning: 2005-11-23 14:39:47 Bryndís ( leiftur@hotmail.com / engin heimasíða) skrifaði: Var ég nú að missa af einhverju?? Var vefurinn í fréttum? Nú má einhver upplýsa mig. Ég er nú á því að ef Guðmundur nennir þá væri gaman að halda vefnum gangandi, er nokkuð þannig á þessum vef sem við þurfum að hafa áhyggjur af að birtist opinberlega. Man reyndar eftir einni mynd af mér sem er alveg skelfileg, hehe. Kveðja, Bryndís |
|
| 76 |
Dagsetning: 2005-11-02 14:00:46 Ólína Kristín Jónsdóttir ( olinak@vortex.is / http://blog.central.is/olinak) skrifaði: Er ekki allt í lagi þó Pétur og Páll kíki hingað inn öðru hvoru?? Ekki hefur þessi ætt neitt að skammast sín fyrir. Og efnið hér eingöngu fróðlegt og skemmtilegt. Verð að viðurkenna að ég hef haft tengil inn á þessa síðu af minni síðu síðan í desember... er nefnilega svolítið stolt af hvað ég á duglega ættingja ;) Þið verðið bara að skamma mig og láta vita ef þið viljið að ég fjarlægi tengilinn. Kveðja, Ólína |
|
| 75 |
Dagsetning: 2005-11-02 00:05:52 Rebekka Ómars ( rebekka@toppnet.is / engin heimasíða) skrifaði: Hæ Hef ekki kíkt á þessa síðu lengi...mikið er hún orðin flott..ari! Frábært! Kveðja úr Þorlákshöfn á afmælisdegi Friðgeirs afa, míns eigin og Friðgeirs frænda...nei annars klukkan er skriðin yfir miðnættið!?. Gengur betur næst...það var svo gaman að skoða myndir og lesa, að ég náðið þessari kveðju ekki á rétta deginum! |
|
| 74 |
Dagsetning: 2005-10-28 14:33:37 Bertha ( bertha_maria@hotmail.com / engin heimasíða) skrifaði: hæ hæ flott ættarsíða :) |
|
| 73 |
Dagsetning: 2005-10-10 22:10:46 Rakel Guðmundsdóttir ( rakelgu@hlidaskoli.is / engin heimasíða) skrifaði: Þeir sem hafa fylgst með fréttum undanfarið skilja betur nú en áður að vefurinn er ekki eins þögull og hann lítur út fyrir að vera!! Þetta er eins og í hryllingsmyndunum: "Ég sé þig en þú sérð mig ekki!" Ég held að við ættum bara að halda þessu áfram með þetta að leiðarljósi og ef eitthvað er hér inni sem má ekki vera þá verður það bara fjarlægt. Hvernig er það ef sett yrði lykilorð á síðuna væri þá hægt að halda öllu "okkar" inni? Það þarf ekki að vera svo flókið að finna orð..eða hvað! Kveðja til ykkar allra! Rakel. ps. Særún, við gætum kannski farið að nota gestabókina eins og blogg!!! |
|
| 72 |
Dagsetning: 2005-10-09 23:36:48 Særún ( runir@internet.is / engin heimasíða) skrifaði: Hæ aftur?? Eitthvað klúðraði ég þessum skrifum, var búin að setja inn flottan pistil og óskaði svo eftir fréttum frá ykkur en ákvað svo sjálf að segja ykkur bíófrétt en þar með datt fyrri pistillinn út. En hann var um það að ég vil endilega halda vefnum gangandi alla vega á meðan vefstjórinn nennir. Ég kíkti á nokkrara færslur í gestabókinni og get ekki séð að þar sé nokkuð sem ekki má sjást. Bara gaman ef fleiri geta notið fróðleiksins sem er á síðunni. Svo er kannski í myndinni að læsa síðunni en þá þarf eiginlega að vera vísbending á upphafssíðunni sem gefur lykilorðið. það þarf að vera eitthvað sem fólk veit og man. En best finnst mér að hafa þetta óbreytt. Svo óska ég sem sagt eftir fréttum af ykkur sem lesið þetta og það þarf ekki að vera merkilegt, bara daglega lífið, frumsýningar og svoleiðis ;) Bestu kveðjur Særún |
|
| 71 |
Dagsetning: 2005-10-09 23:26:05 Særún ( runir@internet.is / engin heimasíða) skrifaði: Hæ aftur Kannski ég segi ykkur smá fréttir, það er ekki á hverjum degi sem íslenskar bíómyndir eru frumsýndar og að í henni "leiki" þrjár frænkur að vestan er náttúrlega einstakt! Við kórfrænkurnar Gerður og Friðgerður og ég erum sem sagt í nýrri mynd sem verður frumsýnd í Háskólabíói á þriðjudaginn. Myndin heitir Kórinn og er um það að vera í kór. Hún er að mestu tekin upp á Ítalíu í fyrra þegar Léttsveitin fór þangað og sýnir að ég held hversu frábært það er að vera í svona stórum og skemmtilegum kór. Svo ef ykkur langar í bíó þá er ekki spurning hvaða mynd á að velja!!! Söng- og bíókveðjur Særún (sem vonar að hún og frænkurnar sjáist í myndinni!!!) |
|
| 70 |
Dagsetning: 2005-10-03 22:57:44 Nína ( ninahafst@vortex.is / engin heimasíða) skrifaði: Sæl, öll. Nú er sem sé komið að því að við verðum að leggjast undir feld og komast að niðurstöðu um hvernig við viljum hafa vefinn okkar - eða taka kostinn sem Guðmundur nefnir, prenta út allt dótið og setja í albúm og hætta þessu svo bara. Ef við gefum okkur að vefnum verði haldið úti áfram hljótum við að umgangast hann með aðeins öðru hugarfari en áður, þetta er ekki okkar "prívat" eins og hann hefur líklega verið lengst af. Það þýðir að við verðum að taka upp eins konar "ritskoðun". Ég ætla að byrja á að mælast til að Flateyjarkortið verði tekið út. Ég sá um að fá leyfi fyrir birtingu á því í fyrra á ættarvef sem hefði takmarkaða útbreiðslu, og því finnst mér rétt að það hverfi núna, enda hljóta allir að vera búnir að skoða nægju sína. Ég er að hugleiða hvað ég vil gera við pistilinn um Sollu gömlu, hann er ekki ætlaður til birtingar á opinberum vettvangi, og kannski kemst ég fljótlega að þeirri niðurstöðu að ég vilji láta fjarlægja hann. Látið endilega heyra frá ykkur um þetta allt saman. Kveðjur, Nína |
|
| 69 |
Dagsetning: 2005-09-19 19:19:51 Nína ( ninahafst@vortex.is / engin heimasíða) skrifaði: Sælt veri fólkið. Eru allir hættir að skrifa? Er ekkert að frétta af ykkur - engin ný börn, giftingar, búferlaflutningar eða annað? Í dag átti ég tal við mann sem er mikill áhugamaður um Sauðeyjar og langar að ná í efni um þær, gamlar myndir o.fl. Eiga einhver ykkar þess háttar í fórum sínum eða vitið þið um það einhvers staðar? Látið endilega vita ef þið lumið á slíku. Ég sagðist nú ekki vera bjartsýn á það en það má reyna. Bestu kveðjur, Nína |
|
| 68 |
Dagsetning: 2005-07-15 14:46:50 Gerður H. Hafsteinsdóttir ( gerdur@tinna.is / engin heimasíða) skrifaði: Sæl öll og takk fyrir síðast, krossfarar. Þetta var virkilega skemmtileg ferð, gaman að vera saman í útilegu og alltaf gaman að ganga berfætt í sandinum og bleyta tærnar í sjónum. Á svona góðviðrisdögum jafnast engin strönd á við Barðaströndina. Vonandi eigum við eftir að endurtaka þetta. Kveðja, Gerður |
|
| 67 |
Dagsetning: 2005-07-07 16:00:04 Ólína Kristín Jónsdóttir ( olinak@vortex.is / http://www.blog.central.is/olinak) skrifaði: Fallegar myndirnar að vestan. Mann fer að langa aftur á Barðaströndina, ekki væri verra að vera þar í svona fallegu veðri. Gott að það er kominn kross yfir Gunna. |
|
| 66 |
Dagsetning: 2005-06-22 22:53:25 Nína ( ninahafst@vortex.is / engin heimasíða) skrifaði: Sælt veri fólkið. Eins og mörg ykkar vitið var farin "krossferð" vestur á Barðaströnd um síðustu helgi, þ.e. við fórum nokkur saman og settum kross á leiðið hans Gunna. Þetta var hin ágætasta ferð, veður gott, að vísu nokkur strekkingur á sunnudaginn þegar tjöld voru tekin niður og ekið heim. Ég vænti þess að umsjónarmaður vefsins setji inn á hann einhverjar myndir úr ferðinni við tækifæri. Bestu kveðjur til "krossfaranna" með þakklæti fyrir samveruna um helgina og auðvitað kveðjur til ykkar hinna líka. Nína |
|
| 65 |
Dagsetning: 2005-04-28 20:53:44 Nína ( ninahafst@vortex.is / engin heimasíða) skrifaði: Gaman að fá þetta innlegg frá Bryndísi um Ólaf. Ég var einmitt búin að heyra einhvers staðar þar sem ég var að spyrja um hann að hann hafi vantað fingur en hvort það var einn eða fleiri kom ekki fram. Minnir að það hafi verið Unnur sem minntist á þetta en nú verður hún ekki spurð meira. Þá stendur eftir spurningin um hvort þetta var meðfætt eða eftir slys. En þetta hefur verið vinstri höndin því að hann segir sjálfur í bréfi sem hann skrifar í Osló í mars 1930, þegar hann er að ná sér eftir heilablæðinguna sem hann fékk þar haustið 1929: "Þú verður að fyrirgefa þó ég skrifi með klessum nokkrum og ritvillum í þetta sinn, því þetta er skrifað með vinstri hendinni, og hún er biluð eins og þú kanski manst." Hægri höndin er þarna ekki komin í samt lag eftir áfallið. |
|
| 64 |
Dagsetning: 2005-04-27 14:25:21 Bryndís ( leiftur@hotmail.com / engin heimasíða) skrifaði: Afþví að Nína spyr um Ólaf Marteinsson þá á ég smá sögu. Ég fór til miðils fyrir allmörgum árum. Sú sagði mér að mér fylgdi maður. Hún sagði hann hafa verið stórgáfaðan og ákveðinn mjög og hann benti með vinstri vísifingri máli sínu til áréttingar. Man ég ekki alveg hvort hún lýsti honum nánar en hún sagði mér að fara og spyrja ömmu mína sem væri tengdari mér um þennan mann. Amma Gyða lá þá á Grensás og taldi ég víst að hún væri amman sem átti að spyrja. Þura var hjá henni í heimsókn þegar ég bar upp spurninguna og þær voru fljótar að stinga upp á því að þarna færi Ólafur Marteinsson enda hefði vantað á hann alveg eða að hluta hægri hendina minnir mig að þær hafi sagt og því þessi áhersla á að hann notaði vinstri höndina. Ég fór til annars miðils nokkrum árum seinna sem einnig sagði að það fylgdi mér maður svo ég virðist hafa notið samfylgdar Ólafs Marteinssonar um nokkurra ára skeið án þess að hafa orðið vör við hann sjálf ;) |
|
| 63 |
Dagsetning: 2005-04-20 23:48:41 Guðmundur Hafsteinsson ( gudmh@mmedia.is / http://www.vedur.is/starfsmenn/gudmh/carminaburana/) skrifaði: Eins og kom fram hjá Hrefnu er Huldubrautarhyskið á kafi í Carmina Burana þessa dagana. Það er alls ekki slæmt því þetta er mjög skemmtilegt verk. Ef þið þekkið það ekki gætuð þið prófað að líta á slóðina hér fyrir ofan, aftan við póstfangið mitt. Þar getið þið fundið svolitla kynningu á verkinu í tónum, máli og myndum. Athugið að þetta er stór skrá, rúmlega 30 Mb. Það borgar sig líklega að sækja skrána og vista á eigin tölvu frekar en að spila hana yfir netið. Það er líklega orðið nánast uppselt á sunnudagstónleikana en nóg til af miðum enn á þriðjudagskvöldið. Látið vita ef ykkur vantar miða! Kveðja, gh. |
|
| 62 |
Dagsetning: 2005-04-20 00:05:42 Hrefna Katrín Guðmundsdóttir ( hrefgud@hi.is / engin heimasíða) skrifaði: Bara ég aftur... :) Fyrir þá sem komast ekki á þriðjudeginum eða á sunnudagskvöldið eru aðrir tónleikar (og fyrir hina líka, það er vel hægt að fara á tvenna tónleika sama daginn!). Sinfóníuhljómsveit Áhugamanna (þar spilum við Nonni bæði) heldur tónleika í Seltjarnarneskirkju klukkan fimm á sunnudaginn (24. apríl) þar sem flutt verður meðal annars Te Deum eftir Charpentier (það inniheldur Eurovision kynningarlagið) og nokkrar vel þekktar aríur úr óperum Mozarts, Bizets og fleiri góðra manna. Nánari upplýsingar um efnisskrá og einsöngvara má finna á sinfonia.itn.is (ath. ekki www). Miðaverð á þessa tónleika er einungis 1000 krónur og afsláttarverð fyrir nemendur og eldri borgara er 500 krónur. Vonandi sé ég einhverja ættingja úti í sal :) Tónleikakveðjur, Hrefna :) |
|
| 61 |
Dagsetning: 2005-04-19 23:53:22 Hrefna Katrín Guðmundsdóttir ( hrefgud@hi.is / engin heimasíða) skrifaði: Tónleikar tónleikar!!! Það verða mjög skemmtilegir tónleikar í Langholtskirkju bæði á sunnudagskvöld (24. apríl) og þriðjudagskvöld (26. apríl). Tónleikarnir hefjast klukkan átta bæði kvöldin. Þar mun Söngsveitin Fílharmónía flytja Carmina Burana eftir Carl Orff ásamt hljómsveit sem samanstendur af tveimur píanóleikurum (Guðríður St. Sigurðardóttir og Sólveig Anna Jónsdóttir) og heilum hellingi af slagverki. Það verða því mikil læti og mikið fjör :) Miðaverð er 2500kr en ef keypt er af kórfélögum (t.d. mér, Nonna, mömmu eða pabba, þetta er eins og þið sjáið fjölskyldukór...) kosta miðarnir 2100kr. Miðum fyrir sunnudagskvöldið er farið að fækka svo að það er eins gott að tryggja sér miða strax ;) Ekki missa af frábærum tónleikum! Átti maður ekki annars að nota gestabókina til þess að auglýsa sig og sína? Kveðja, Hrefna :o) |
|
| 60 |
Dagsetning: 2005-04-13 22:47:42 Nína ( ninahafst@vortex.is / engin heimasíða) skrifaði: Sæl verið þið aftur. Mér datt í hug um daginn eftir að ég skrifaði ykkur síðast að nota þennan vettvang til að afla mér upplýsinga. Ég byrjaði á því í fyrra að viða að mér öllu sem ég gæti fundið varðandi Ólaf Marteinsson frænda okkar í þeim tilgangi að skrifa um hann grein. Ólafur var merkilegur maður, merkilegri en nokkurt okkar hefur haft hugmynd um. Hann hafði eins og við vissum lokið háskólaprófi, var venjulega titlaður "magister". Eftir það var honum boðið að halda fyrirlestra við háskólann í Osló. Hann fór þangað en veiktist áður en hann tók til starfa, lá þar lengi veikur og kom síðan heim. Hann var svo hér í Reykjavík lengst af þar til hann veiktist snögglega aftur og dó, í janúar 1934. Ég er búin að hafa upp á ýmsu varðandi hann og er enn að safna. Nú langar mig að spyrja ykkur hvort þið hafið t.d. heyrt ömmu segja frá einhverju sérstöku um Ólaf. Hefur eitthvert ykkar heyrt að hann hafi verið eitthvað fatlaður áður en hann veiktist og þá hvernig? Segið mér endilega frá því sem þið vitið um Ólaf - það getur alltaf leynst þar eitthvað sem ég hef ekki heyrt og gæti komið að notum. Veit einhver hvað varð um myndina af Ólafi sem var í stofunni á Fossi? Bestu kveðjur, Nína |
|
| 59 |
Dagsetning: 2005-04-07 23:08:37 Nína ( ninahafst@vortex.is / engin heimasíða) skrifaði: Sælt veri fólkið! Eru allir hættir að nenna að skrifa? Er ekkert að frétta af ykkur? Ég þykist vita að ættin hafi verið að stækka undanfarið og það hefði nú verið tilvalið að segja okkur fréttir af því hér í gestabókinni. Nú standa líka yfir fermingar og einhverjir úr hópnum eru að komast í fullorðinna manna tölu, a.m.k. frænkurnar þrjár sem mættu nánast nýfæddar á mótið í Örlygshöfn hér um árið (já, það er svona langt síðan við vorum þar!). Ég lít oft á síðuna ef ég á annað borð kveiki á tölvu og mér sýnist teljarinn ansi röskur að telja upp á síðkastið, varla að ég trúi honum alltaf. Látið endilega heyra eitthvað frá ykkur. Bestu kveðjur úr Nökkvavogi, Nína |
|
| 58 |
Dagsetning: 2005-03-02 22:05:22 Særún ( runir@fjoltengi.is / engin heimasíða) skrifaði: Kertasýning!!! Verið velkomin á kertasýningu í Studio os, Rangárseli 8, Reykjavík. Handunnin kerti fyrir öll tækifæri. Sýningin er opin frá 6. - 18. mars alla daga frá kl. 14 - 17. (eða eftir samkomulagi) Kertagerðin Týra Gerður og Særún |
|
| 57 |
Dagsetning: 2005-02-10 15:17:53 Bryndís ( leiftur@hotmail.com / engin heimasíða) skrifaði: Ja hérna, maður er bara búinn að missa af þessari líka spennandi keppni ;) Mitt innlit er númer 1024 svo það er bara svona ómerkileg tala og ekkert á því að græða :) Ég sá að Gerðar leggur var að spila á bóndadaginn, datt þá í hug hvort við gætum ekki hist einhvern tíma fleiri leggir og spilað félagsvist t.d.? Eða bara hist yfir kaffibolla og spjallað eins og í Seljakirkju um árið, missti því miður af því vegna veikinda og sat heima súr í bragði. Kveðja, Bryndís |
|
| 56 |
Dagsetning: 2005-02-08 00:02:05 Guðmundur Hafsteinsson ( gudmh@mmedia.is / http://www.mmedia.is/~gudmh/foss) skrifaði: Þetta er flókið! Ég fór "bakdyramegin" inn í gestabókina rétt fyrir kl. 23 og þá stóð þar talan 1000! Sá sem fletti upp þeirri tölu hefur hins vegar ekki gefið sig fram. Ef enginn gerir kröfu til þess fyrir hádegi á morgun að hafa verið númer 1000 mun ég útbúa væntanlegan "glaðning" í tveimur eintökum og veita hann þeim mæðgum sem urðu nr. 999 og 1001! gh. |
|
| 55 |
Dagsetning: 2005-02-07 23:57:55 Nína ( ninahafst@vortex.is / engin heimasíða) skrifaði: Ég varð að gá hvað margir væru komnir í gestabókina og þegar ég opnaði kom upp 1001! Hver var númer 1000? - Nú breytti ég textanum og þá kom upp 1002 og sem ég skrifa þessar línur stendur talan 1003 fyrir framan mig! Þetta er eitthvað dularfull talning! Skrifa ekki meira, ætli komi ekki 1004 þegar ég smelli á "breyta"? Kveðja, Nína |
|
| 54 |
Dagsetning: 2005-02-07 20:56:47 KristínÁrmanns ( kristinarm@fjoltengi.is / engin heimasíða) skrifaði: Var að kíkja á myndir af nýjustu fjölskyldumeðlimum. Til Hamingju! Sá á skrifum í gestabókina að upp hefur komið hugmynd um að verðlauna heimsókn númer 1000. Ég fór því að velta fyrir mér númer hvað ég væri og númer hvað var ég ?? JÚ AUÐVITAÐ 999! |
|
| 53 |
Dagsetning: 2005-02-07 19:22:21 Ólína Kristín ( jupiter@mmedia.is / http://www.blog.central.is/olinak) skrifaði: Ég rétt missi af glaðningi... er númer 997! Heiðarleg líka :o) Mér finnst bara sjálfsagt að blanda saman nýjum og gömlum fróðleik hér á síðunni. Get til dæmis frætt ykkur á því að ég var að kaupa mér íbúð og verð Mosfellsbæingur eftir ca. hálfan mánuð... það er gott að færa sig aðeins nær sveitinni! |
|
| 52 |
Dagsetning: 2005-02-06 10:50:56 Særún ( runir@fjoltengi.is / engin heimasíða) skrifaði: Halló halló! Guðmundur er nú algjör snillingur, kominn með línurit og súlurit og ég veit ekki hvað. Nú er maður bara orðinn spenntur fyrir glaðningi og spurning hvort maður dundar sér ekki bara við að opna gestabókina 22 sinnum í viðbót í dag!!! Mér finnst ekki spurning um að bæta við fréttum úr nútímanum og segja frá helstu viðburðum í okkar lífi. Og svo skemmtilegum uppákomum eins og þessu fína spilakvöldi sem Gerður hélt fyrir sinn legg á bóndadaginn. Virkilega skemmtilegt kvöld þar sem þrjár kynslóðir skemmtu sér saman. Svo er líka upplagt að senda afmæliskveðjur o.þ.h. Alla vega finnst mér mjög gaman að kíkja á vefinn og ég kem að sjálfsögðu við í gestabókinni svo sennilega á ég nokkrar heimsóknir þangað. Bestu kveðjur þangað til næst. Særún |
|
| 51 |
Dagsetning: 2005-02-06 00:46:44 Guðmundur Hafsteinsson ( gudmh@mmedia.is / http://www.mmedia.is/~gudmh/foss) skrifaði: Það mætti halda að Nína læsi hugsanir, ég var einmitt að velta því fyrir mér hvernig ég gæti staðið að því að verðlauna gestabókarlesanda nr. 1000. Ég er reyndar með ákveðna hugmynd um smáglaðning, á að vísu eftir að sannreyna að það gangi. Ég er hins vegar ekki búinn að finna út hvernig ég á að komast að því hver verður gestabókarlesandi nr. 1000, sýnist helst að ég verði að treysta því að hann segi frá því sjálfur, rétt eins og hann væri að spila bingó. Sá sem fyrstur les það úr upplýsingalínunum hér fyrir ofan að komin séu 1000 innlit eða fleiri síðan 19. maí 2004 er því vinsamlegast beðinn að segja frá því í gestabókinni! Óska Nínu svo til hamingju með að skrifa fimmtugasta innleggið í gestabókina. Það eru engin verðlaun fyrir það en sjáum til með það hundraðasta! Kveðja, gh. |
|
| 50 |
Dagsetning: 2005-02-05 13:38:33 Jónína Hafsteinsdóttir ( ninahafst@vortex.is / engin heimasíða) skrifaði: Sæl verið þið öll. Það er fróðlegt að sjá yfirlitið yfir notkunina á vefnum og gestabókinni. Mér finnst alveg frábært að varla skuli líða dagur svo að ekki líti einhver inn. Ég var rétt í þessu að senda einni frænkunni slóðina á vefinn, hún vissi að hann var til kringum ættarmótið í sumar en hafði ekki hugmynd um að hann væri enn virkur. Það mætti alveg segja mér að hún væri ekki ein um að hafa ekki vitað af honum svo að ég vil skora á ykkur öll sem lítið á hann reglulega að segja frá honum í kringum ykkur ef það skyldi hafa farið fram hjá fleirum að hann er enn sprelllifandi. Þó gaman sé að "pæla í" þessu gamla held ég að við gætum alveg sett inn nýtt efni í bland, fréttir af ættingjunum og annað sem okkur dettur í hug. Það má segja frá því þegar einhverjir ljúka námi, hvort sem er háskólanám, iðnnám eða annað, frá búferlaflutningum, nýrri vinnu o.fl. og svo að sjálfsögðu nýjum kvistum á ættartrénu. Þetta má skrifa í gestabókina svo þar sé oftar von á einhverju nýju. Nú getum við farið að spá í hver verður gestur nr. 1000 í bókinni - spurning hvort vefurinn hefur hugsað fyrir nokkrum glaðningi handa þeim gesti!!! Bestu kveðjur, Nína P.S. Í gær var afmælisdagur eins af eldri kynslóðinni. Ég veit að einn af þeim yngstu átti líka afmæli í gær og annar á afmæli eftir örfáa daga, 9. febrúar ef mér skjátlast ekki, og ég sendi þeim báðum bestu hamingjuóskir á tveggja ára afmælunum. N. |
|
| 49 |
Dagsetning: 2005-01-04 22:12:37 Sigríður Hafdís Runólfsdóttir ( friends@isl.is / engin heimasíða) skrifaði: Bestu óskir um gleðilegt nýtt ár og hjartans þakkir fyrir liðnar stundir. Við misstum því miður af ættarmótinu síðastliðið sumar, en verðum vonandi með næst. Það er gaman að geta fylgst með öllum hér og skoðað skemmtilegar myndir. Takk fyrir góðan vef. Læt fylgja með slóð á heimasíðu barnanna, http://www.barnaland.is/barn/24013 Bestu kveðjur Sigr. Hafdís og fjölskylda. |
|
| 48 |
Dagsetning: 2005-01-01 16:45:39 Guðm. H. Friðgeirsson ( vilpa@borgarholsskoli.is / engin heimasíða) skrifaði: Óska öllum ættingjum mínum árs og friðar. Sérstakar þakkir til nafna fyrir að halda þessum vef gangandi. GHF |
|
| 47 |
Dagsetning: 2004-12-25 14:26:21 Jónína Hafsteinsdóttir ( ninahafst@vortex.is / engin heimasíða) skrifaði: Sælt og blessað fólkið. Við Ármann sendum ykkur öllum bestu jóla- og nýársóskir og þökkum allt gamalt og gott. Sérstakar þakkir til þeirra sem voru á ættarmótinu í sumar fyrir skemmtilegar samverustundir. Vonandi hittumst við hress og kát á nýju ári. Ég legg til að við verðum iðin við að líta á síðuna okkar og skrifa smákveðjur í gestabókina. Það yljar manni alltaf pínulítið um hjartað að heyra frá frændfólkinu þótt ekki séu nein stórtíðindi á ferðinni. A.m.k. sumir af eldri kynslóðinni höfðu/hafa afskaplega gaman af að lesa bréf, jafnvel þótt þau hefðu engar sérstakar fréttir að færa, og held að þetta "gen" hljóti að vera til staðar í einhverjum okkar. Kærar kveðjur úr Nökkvavoginum, Nína |
|
| 46 |
Dagsetning: 2004-12-22 23:02:00 Ólína Kristín ( jupiter@mmedia.is / http://www.blog.central.is/olinak) skrifaði: Við sendum ykkur öllum okkar bestu óskir um gleðiríka jólahátíð og farsæld á komandi ári. Þökkum góðar stundir á ættarmóti í sumar og hlökkum til komandi samverustunda. Jólakveðjur frá Heiðu, Ólínu og Unni Helgu |
|
| 45 |
Dagsetning: 2004-12-21 14:30:10 Hrefna Katrín Guðmundsdóttir ( ekkert netfang / engin heimasíða) skrifaði: Er ekki alltaf gott veður á þessum slóðum? |
|
| 44 |
Dagsetning: 2004-12-20 17:59:00 Særún Ármannsdóttir ( runir@fjoltengi.is / engin heimasíða) skrifaði: Gleðileg jól og farsælt komandi ár. Kærar þakkir fyrir góðar stundir á ættarmótinu í sumar. Jólakveðja :) Særún p.s. já það væri svo sannarlega þess virði að príla upp á fjallið en þá í góðu veðri. SÁ |
|
| 43 |
Dagsetning: 2004-12-20 14:55:16 Hrefna Katrín Guðmundsdóttir ( hrefgud@hi.is / engin heimasíða) skrifaði: Maður þyrfti nú að príla upp þetta fjall við tækifæri... A.m.k. bendir útsýnið til þess að það borgi sig! |
|
| 42 |
Dagsetning: 2004-12-08 10:23:42 Gerður H. Hafsteinsdóttir ( gerdur@tinna.is / engin heimasíða) skrifaði: Komið þið sæl! Litla ömmustelpan var skírð á sunnudaginn var heima hjá okkur í Stekkjarselinu við hátíðlega athöfn og fékk nafnið Laufey María. Það er nokkuð síðan ég kíkti síðast á vefinn. Nú eru komið fullt af myndum sem ég hef aldrei séð áður. Mjög gaman að skoða þær. Heyrumst síðar. Kveðja, Gerður |
|
| 41 |
Dagsetning: 2004-12-07 10:40:39 Bryndís ( leiftur@hotmail.com / engin heimasíða) skrifaði: Kæra frændfólk! Ég kíki reglulega hér inn til að athuga hvort komnar eru nýjar myndir og/eða fréttir í gestabókinni :) Þetta er alveg frábært framtak Guðmundur! Ég vil nota tækifærið og koma á framfæri jólakveðju frá okkur Mosfellbæingum. Bestu jóla- og nýárskveðjur með þökk fyrir skemmtilegt ættarmót. Hlökkum til að sjá ykkur á því næsta :) Bryndís, Egill, María Gyða og Hrefna Guðrún |
|
| 40 |
Dagsetning: 2004-11-19 18:16:40 Ólína Kristín ( jupiter@mmedia.is / engin heimasíða) skrifaði: Takk takk fyrir að koma þessum myndum inn. Það er alltaf gaman að skoða gamlar myndir, sérstaklega af ættingjunum. Varðandi "dularfulla" piltinn á hestinum með Friðgeiri og hópmyndinni, þá spurði ég Jóa í Litlu Hlíð og hann kannast ekki við þessa mynd af sér og Friðgeiri þannig að líklega má útiloka hann. Hann sagðist þó ekki vera 100% viss. Með kveðju og von um að fólk verði áfram duglegt að senda inn efni. Ólína |
|
| 39 |
Dagsetning: 2004-11-06 20:53:46 Guðmundur Hafsteinsson ( gudmh@mmedia.is / http://www.mmedia.is/~gudmh/foss) skrifaði: Gömlu myndirnar falla greinilega í góðan jarðveg. Góðir myndatextar gefa þeim margfalt gildi og allar tillögur til bóta eru vel þegnar. Eru ekki fleiri sem luma á gömlum og góðum myndum? Það er enn nóg pláss á vefnum, plássið sem fylgdi netáskriftinni minni er ekki fullt enn og þegar það fyllist er auðvelt að stækka það með litlum tilkostnaði! |
|
| 38 |
Dagsetning: 2004-11-03 22:09:54 Guðm. H. Friðgeirsson ( vilpa@borgarholsskoli.is / engin heimasíða) skrifaði: Sælir ættingjar. Ég vil lýsa ánægju minni með þennan ættarvef. Frábært ef nafni nennir og getur haldið honum úti. Ég hef verið að skoða myndirnar. Ég kannast við margar og á sumar. Mér sýnist að við þurfum að endurskoða myndtextana. Ég sýndi mömmu nokkrar myndir um daginn og sendi henni nokkrar í dag til skoðunar. Hún lét mig líka hafa nokkrar frá sér sem ég ætla að skanna og senda Guðmundi. Ég held að hún viti mest um þessar myndir. Ég ætla að fara betur yfir myndtextana með henni og senda okkar tillögur. Eitt leyfi ég mér þó að fullyrða. Myndin af Ella með hattinn er tekin í garðinum í Litluhlíð (sést í hjallinn). Annað. Hafsteinn og pabbi og þeir bræður allir eru óþægilega líkir þegar þekkja á þá á myndum. Ekki meira í bili. Kveðja Mummi P.s. Er hægt að hafa ótakmarkað af myndum á þessum vef ? |
|
| 37 |
Dagsetning: 2004-10-29 13:08:08 Friðgerður Björk Friðgeirsdóttir ( fridgerdur@gamar.is / engin heimasíða) skrifaði: Komið þið sæl kæru frændur og vinir!Guðmundur þetta er stórkostleg síða, og þú átt heiður skilinn fyrir hana.Kristján það fór gæsahúð um mig þegar ég heyrði í ömmu, ég man eftir þessari þulu, amma í Litlu hlíð held ég að hafi kunnað hana líka, ég þarf að fá mömmu til að hlusta á þetta, hún getur ef til vill gefið einhverjar upplýsingsr sem við ekki munum. ég vil að þið vitið það öll að ég er stollt af því að vera ein af ykkur. Kær kveðja Lilla frænka |
|
| 36 |
Dagsetning: 2004-10-19 15:11:13 Árni Snæbjörnsson ( ekkert netfang / engin heimasíða) skrifaði: Sæl öll saman Var að líta á vefinn eftir nýjustu uppfærslu. Mér finnst þetta stórfróðlegt og skemmtilegt. Bestu þakkir Guðm. Hafsteinsson og aðrir sem að þessu koma. Árni Sn. |
|
| 35 |
Dagsetning: 2004-10-17 22:16:50 Rakel Guðmundsdóttir ( rakelgu@hlidaskoli.is / engin heimasíða) skrifaði: Til hamingju með nýju barnabörnin Friðgerður og Gerður. Frábær tækni að geta séð myndir af þeim strax! Eins er mjög gaman að skoða gömlu myndirnar og fyndið hvað ættarsvipurinn kemur í gegn! Mér finnst pabbi að verða ótrúlega líkur þeim gamla.....! Kveðja, Rakel. Kveðja, Rakel. |
|
| 34 |
Dagsetning: 2004-10-13 14:26:23 Friðgerður Sigríður Benediktsdóttir ( fridsb@landspitali.is / engin heimasíða) skrifaði: Komið þið sæl! Ég ætla að gera tilraun til að koma fréttum á framfæri í gestabókina. Nýlega fæddust tveir drengir sem eru afkomendur Gyðu sá fyrri fæddist 15. september s.l. og er sonur Gyðu Bjarkar og Björgvins kom aðeins á eftir tímanum og var um 13 merkur og 51cm. hinn fæddist 1. október og var að flýta sér á eftir frænda því hann var um 3 vikum á undan tíma en var samt um 12 merkur og 48 cm. og er sonur Ísaks og Rannveigar þeim heilsast báðum vel eftir smá byrjunarörðugleika hjá Ísakssyni sem var með smá gulu og fékk svo augnsýkingu sem væntanlega er búið að komast fyrir, myndir og fleiri upplýsingar er að finna á eftirfarandi síðum: www.tkr.is/tritill og www.verslun.is/barn. Bestu kveðjur til allra, Friðgerður S. Benediktsdóttir |
|
| 33 |
Dagsetning: 2004-10-10 18:12:40 Ólína Kristín Jónsdóttir ( jupiter@mmedia.is / engin heimasíða) skrifaði: Til hamingju með nýja barnabarnið Gerður. Þetta er frábær vettvangur til að fá svona fréttir :) Ég þarf greinilega að fara að kíkja á bókasafnið og taka Flateyjargátu, maður hefur nógan tíma til að lesa skemmtiefni, fyrsti skólalausi veturinn í mörg ár. Það er ljúft að vera "bara" að vinna!! Kveðja, Ólína hjúkka |
|
| 32 |
Dagsetning: 2004-10-08 14:03:38 Hrefna Katrín Guðmundsdóttir ( hrefgud@hi.is / engin heimasíða) skrifaði: Ég skemmti mér líka vel við lestur Flateyjargátunnar á næturvöktum í sumar eftir ættarmótið. Mæli með henni :) |
|
| 31 |
Dagsetning: 2004-10-08 13:20:10 Gerður H. Hafsteinsdóttir ( gerdur@tinna.is / engin heimasíða) skrifaði: Komið þið sæl. Ég má til að láta vita af nýjum fjölskyldumeðlim. Hafdís og Óli (dóttir mín og tengdasonur) eignuðust dóttur 26. sept. sl. Hún var tæpl. 15 merkur og 50 sm. löng, og heilsast vel. Þau eiga fyrir Jóhannes Orra sem er 5 ára og afskaplega hrifinn af litlu systur sinni. Ég fór á bókasafnið um daginn og náði mér í Flateyjargátuna og er langt komin með hana. Ég mæli alveg með henni, hún er virkilega skemmtileg. Gaman að lesa um þetta þegar maður er loksins búinn að koma í Flatey. Heyrumst síðar. Kv. Gerður |
|
| 30 |
Dagsetning: 2004-10-08 09:01:14 Árni Snæbjörnsson ( as@bondi.is / engin heimasíða) skrifaði: Sæl verið þið öll saman Var að skoða síðuna. Mér finnst það mjög gott að halda henni lifandi fyrst Guðmundur vill að sjá um það. Bestu þakkir fyrir það. Ég er ekki með neinar ábendingar um efni, en gaman var að fá þarna inn myndirnar sem komnar eru frá síðasta ættarmóti. Kveðjur, ÁS |
|
| 29 |
Dagsetning: 2004-09-22 17:00:38 Særún ( runir@fjoltengi.is / engin heimasíða) skrifaði: Halló halló Ég vil nú bara enn og aftur lýsa ánægju minni, mér finnst vefurinn skemmtilegur og upplagt að við nýtum okkur hann. Það er til dæmis upplagt að leyfa ættinni að fylgjast með stórfréttum barneignum, búferlaflutningum, o.fl. o.fl. Ég var svo fljót á mér og fór með mínar gamaldags filmur í framköllun strax morgunin eftir ættarmótið og gleymdi að biðja um þær á disk. En ég skal við fyrsta tækifæri koma ættarmótsmöppunni til Guðmundar og hann getur þá dundað sér við að skanna ef eitthvað er nýtilegt hjá mér. Ég skora á ykkur að láta heyra frá ykkur í gestabókinni. Kveðja Særún |
|
| 28 |
Dagsetning: 2004-09-19 22:19:41 Guðmundur Hafsteinsson ( gudmh@mmedia.is / http://www.mmedia.is/~gudmh/foss) skrifaði: Nú hefur vefurinn fengið nýtt útlit og nýtt hlutverk. Ættarmótinu er lokið og ekki lengur ástæða til að kenna vefinn við það eitt. Látið frá ykkur heyra hvað þið viljið sjá á vefnum, umsjónarmaður mun taka allar tillögur til athugunar! |
|
| 27 |
Dagsetning: 2004-08-22 23:28:56 Guðmundur Hafsteinsson ( gudmh@mmedia.is / http://www.mmedia.is/~gudmh/foss) skrifaði: Umsjónarmaður vefsins verður að viðurkenna að það hefur freistað meira að undanförnu að vera úti við á kvöldin í þessu frábæra sumarveðri, sem aldrei ætlar að taka enda, en að sitja inni við og dútla við vefsíður. En það stendur væntanlega til bóta! Þá er rétt að nefna að Bryndís er búin að senda myndir sem eru væntanlegar á vefinn fljótlega. En sendið endilega fleiri! Kveðja, gh. |
|
| 26 |
Dagsetning: 2004-08-22 22:53:13 Nína ( ninahafst@vortex.is / engin heimasíða) skrifaði: Sælt veri fólkið. Ég hef litið á síðuna góðu af og til í von um að sjá eitthvað nýtt en það fer lítið fyrir því. Á ekki einhver fleiri myndir sem væru þess virði að birta þær? Einhvern tíma var stungið upp á ljósmyndasamkeppni sem gæti verið bráðskemmtileg - hvernig væri að drífa í því að koma henni í framkvæmd? Við skruppum á Vestfirðina í sumar og auðvitað var komið við á Fossi og farið í fjöru eins og tilheyrir. Við litum líka inn í bæinn svona rétt til að sjá hvort ekki væri nú búið að gera þar eitthvað af viti síðan við vorum þar síðast en auðvitað var það ekki - eina breytingin frá því við yfirgáfum staðinn á hvítasunnunni í fyrra var sú að það var aftur komið drasl í stofuna og einhverjir hlerar dottnir frá gluggum. En fjaran stóð fyrir sínu og veðrið eins og best varð á kosið. Bestu kveðjur, Nína |
|
| 25 |
Dagsetning: 2004-07-14 10:01:35 Bryndís ( bryndis@bhm.is / engin heimasíða) skrifaði: Sæl og blessuð elskulega frændfólk. Við erum nú komin til byggða á ný eftir nánast samfellt flakk frá ættarmótinu. Okkur langar til að þakka ykkur öllum fyrir samveruna, einstakt alveg hvað þessi ætt er alltaf skemmtileg ;) Hlökkum til að hitta ykkur öll og helst fleiri á næsta ættarmóti og þangað til getum við kíkt hingað inn og yljað okkur við minningar um skemmtilegar samverustundir á Snæfellsnesinu 2004. Kveðja, Bryndís og co. |
|
| 24 |
Dagsetning: 2004-07-13 23:40:26 Gerður H. Hafsteinsdóttir ( runolfur-er@isholf.is / engin heimasíða) skrifaði: Halló og takk fyrir síðast!! Ég og mín fjölskylda (þeir sem gátu mætt) skemmtum okkur vel. Mér fannst æðislegt að koma í Flatey en þangað var ég að koma í fyrsta sinn. Einnig kom mér skemmtilega á óvart að koma í Bjarnarhöfn, hef reyndar komið þar við áður, þá lágu 11 hákarlar á hlaðinu og biðu verkunar. Takk, Guðmundur fyrir frábæra síðu, og takk, fráfarandi ættarmótsnefnd fyrir skemmtilega helgi. Hlakka til næsta ættarmóts, hvar sem það verður haldið. Kveðja, Gerður og fjölskylda |
|
| 23 |
Dagsetning: 2004-07-08 22:07:03 Guðmundur Hafsteinsson ( gudmh@mmedia.is / http://www.mmedia.is/~gudmh/foss) skrifaði: Hæ! Það er rétt hjá Nínu og Dagnýju að teljarinn er dálítið ofvirkur! Ég er búinn að skoða málið og sé ekki að ég geti breytt þessu, gestabókin er bara svona gerð. Ég gæti hreinsað út gömul innlegg þannig að aldrei sé nema ein síða í gestabókinni en ég held að það sé skemmtilegra að geta séð meira þó að það kosti svolítinn rugling í talningu. Hvað finnst ykkur? Nú er ég á leið í sumarfrí og mun ekki gera mikið við vefinn næstu tvær vikur eða svo. Þegar ég kem aftur mun ég skoða hvernig ég get sett betri teljara á forsíðuna. Kveðja, gh. |
|
| 22 |
Dagsetning: 2004-07-07 23:43:12 Rakel Guðmundsdóttir ( rakelgu@hlidaskoli.is / engin heimasíða) skrifaði: Halló! Gaman að sjá myndirnar frá ættarmótinu! Verið þið endilega dugleg að senda inn myndir...sjálf var ég ekki með digital vél!! Kveðja, Rakel. |
|
| 21 |
Dagsetning: 2004-07-07 20:56:57 Nína ( ninahafst@vortex.is / engin heimasíða) skrifaði: Hæ, hæ. Við Dagný erum að skoða gestabókina og myndirnar. Okkur sýnist bætast við nýtt innlit í hvert skipti sem farið er milli síðna í gestabókinni. Það er nú svolítið svindl, finnst okkur. Kveðja, Nína |
|
| 20 |
Dagsetning: 2004-07-07 20:40:49 Dagný ( ninahafst@vortex.is / engin heimasíða) skrifaði: Halló, allir. Mér fannst skemmtilegast í Bjarnarhöfn, í kirkjunni, og mér fannst líka gaman að fara í Flatey og það var bara allt skemmtilegt. Kveðja, Dagný |
|
| 19 |
Dagsetning: 2004-07-07 13:49:40 Atli Ómarsson ( atli@gamako.is / engin heimasíða) skrifaði: Við viljum þakka öllum þeim sem við náðum ekki að kveðja á mótinu um daginn og líka þeim sem við kvöddum fyrir skemmtilega helgi, hlökkum til að hitta ykkur öll aftur á næsta móti. Þangað til lifir minningin í huganum og á myndum sem skemmtilegt er að fletta upp í. Kveðja, Atli Ómarsson & fjölskylda. |
|
| 18 |
Dagsetning: 2004-07-05 19:37:59 Ólína Kristín Jónsdóttir ( jupiter@mmedia.is / engin heimasíða) skrifaði: Takk fyrir síðast allir saman, þetta var þrusu ættarmót þó að mig minni að einhverntímann hafi verið meira líf í fólki. Flateyjarferðin var alger snilld. Mér líst vel á að halda síðunni opinni, það minnir mann á frændfólkið sem maður hittir alltof sjaldan að sjá "ættarmót 2004" á favorites listanum. Ljósmyndakeppnin er frábær hugmynd, ég ætla að segja Unni systur að drífa sig að senda inn myndir, hvort sem það verður til gamans eða alvöru :). Guðmundur á mikið hrós skilið fyrir heimasíðuframtakið, hann getur svo bara hent þessu á næstu nefnd þegar hann fær nóg. Bestu kveðjur, Ólína |
|
| 17 |
Dagsetning: 2004-07-01 14:39:53 Særún ( ninahafst@vortex.is / engin heimasíða) skrifaði: Halló og takk fyrir síðast! Mikið svakalega var nú gaman!!! Nú verðum við bara dugleg að kíkja á síðuna og skrifum endilega í gestabókina öðru hvoru. Við verðum að sætta okkur við að þetta eru nýjustu leiðirnar til að frétta af öðrum og koma fréttum af okkur á framfæri, nýtum okkur það. Guðmundur þú átt svo sannarlega mikið hrós skilið fyrir þessa vinnu. Verðum í sambandi og svo sjáumst við nú vonandi líka eitthvað. Bestu kveðjur Særún |
|
| 16 |
Dagsetning: 2004-06-29 22:38:33 Nína ( ninahafst@vortex.is / engin heimasíða) skrifaði: Sælir, "Skjöldungar". Bestu þakkir fyrir samveruna. Við skulum endilega reyna að halda síðunni gangandi áfram, þ.e.a.s. ef Guðmundur er til í að sjá um tæknilegu hliðina. Þetta er ágætis leið til að halda aðeins þræðinum frá ættarmótinu þannig að við vitum hvert af öðru þó við hittumst kannski ekki mjög oft. Sendum inn myndir til að setja á vefinn, alltaf gaman að skoða þær (nema helst af manni sjálfum). Heyrumst síðar. Bestu kveðjur, Nína |
|
| 15 |
Dagsetning: 2004-06-28 23:33:11 Rakel Guðmundsdóttir ( rakelgu@hlidaskoli.is / engin heimasíða) skrifaði: Sæl öllsömul og takk fyrir síðast! Mér finnst engin spurning að halda þessum vef inni ef möguleiki er á. Það er auðvelt og fljótlegt að kíkja annað slagið ef slóðin er sett í "Favorites!" Líklegt er þó að notkunin verði mest í kringum ættarmótin. Bestu kveðjur til ykkar allra, Rakel. |
|
| 14 |
Dagsetning: 2004-06-25 12:43:54 Guðmundur Hafsteinsson ( gudmh@mmedia.is / http://www.mmedia.is/~gudmh/foss) skrifaði: Þá er komið að ættarmótinu sem allir hafa beðið eftir, a.m.k. síðan í fyrra! Sjáumst í Helgafellssveitinni um helgina, munum eftir regnfötunum og góða skapinu! gh. |
|
| 13 |
Dagsetning: 2004-06-24 16:46:04 Olga Friðgeirsdóttir ( olga@semera.se / engin heimasíða) skrifaði: Kæru ættingjar. Þar sem við getum ekki verið með ykkur á þessu ættarmóti, viljum við senda okkar bestu kveðjur og óskir um gott veður fyrir ykkur. Og ég verð nú að segja að ég er eiginlega dálítið glöð yfir því að hún amma fór ekki til Ameríku!! Bestu kveðjur, Olga Friðgeirsdóttir og börn, Friðgeir Karl og Alexandra. |
|
| 12 |
Dagsetning: 2004-06-24 10:13:03 Nína ( ninahafst@vortex.is / engin heimasíða) skrifaði: Sælt veri fólkið. Tíminn hefur liðið ótrúlega hratt og nú er helgin alveg að bresta á. Var að skoða veðurspána og hún gæti svo sem verið betri en hún gæti líka verið miklu, miklu verri. Það er að minnsta kosti ekki líkur á að neitt fjúki núna og ætti að verða þokkalega gott í sjóinn til Flateyjar. Lítum bara á björtu hliðarnar en tökum regngallann með! Sjáumst! Bestu kveðjur, Nína |
|
| 11 |
Dagsetning: 2004-06-23 23:37:03 Birna Lúðviksdóttir ( biddalu@isl.is / engin heimasíða) skrifaði: Frábær heimasíða.Hakka til að hitta ykkur um helgina hress og kát kveðja Birna. |
|
| 10 |
Dagsetning: 2004-06-22 23:15:38 Rakel Guðmundsdóttir ( rakelgu@hlidaskoli.is / engin heimasíða) skrifaði: Kæru ættingjar! Vona að sem flestir komist á mótið sem styttist heldur betur í...sjáumst á Snæfellsnesinu! Bestu kveðjur, Rakel Guðmundsdóttir |
|
| 9 |
Dagsetning: 2004-06-21 12:02:47 Hrefna Katrín Guðmundsdóttir ( hrekagu@simnet.is / engin heimasíða) skrifaði: Halló halló öll :) Nú eru bara fjórir dagar til ættarmótsins mikla! Eru ekki allir orðnir spenntir? |
|
| 8 |
Dagsetning: 2004-06-13 21:48:43 Særún Ármannsdóttir ( ninahafst@vortex.is / engin heimasíða) skrifaði: Halló halló Nú er ég nýlent eftir frábæra tveggja vikna ferð til Ítalíu, þar var ég í um 30 stigum og sól seinni vikuna en upplifði mestu rigningu í Feneyjum sem hægt er að hugsa sér. Ég svo sannarlega farin að hlakka til að hitta ykkur á ættarmóti og vona að Feneyjarrigningin nái ekki til landsins. Sjáumst eftir 11 daga!!! Særún |
|
| 7 |
Dagsetning: 2004-06-01 12:39:39 Rebekka Ómarsdóttir ( rebekkaomars@hotmail.com / engin heimasíða) skrifaði: Frábær síða! Vonast til að geta staðfest komu mína sem fyrst. Hef ekki fengið nægar upplýsingar um annað mót, sem fjölskyldan þarf að mæta á. Það verður í "nágrenninu" og vonumst við til að geta sameinað mótin. Kveðja,Rebekka |
|
| 6 |
Dagsetning: 2004-05-26 14:15:58 Bryndís Jónsdóttir ( bryndis@bhm.is / engin heimasíða) skrifaði: Heil og sæl kæra ættarmótsnefnd! Til hamingju með stórkostlegan vef og góðan undirbúning. Ég og mínir hlökkum mikið til að sjá ykkur og auðvitað restina af ættinni á Snæfellsnesinu. Við segjum sjóveiki stríð á hendur og stefnum í Flatey. Þar til þá....au revoir :) Bryndís |
|
| 5 |
Dagsetning: 2004-05-24 21:18:18 Árni Snæbjörnsson ( as@bondi.is / engin heimasíða) skrifaði: Ágæta frændfólk. Heimsíðan er góð - bestu þakkir. Vonandi verður gefin út ættarskrá sem dreift verður á staðnum svipað og gert hefur verið áður. Verður kjörfundi lokið nægjanlega snemma? Kveðjur, Árni Snæbjörnsson |
|
| 4 |
Dagsetning: 2004-05-22 21:34:48 Ólína Kristín Jónsdóttir ( jupiter@mmedia.is / engin heimasíða) skrifaði: Frábær heimasíða!!! Hlakka til að hitta ykkur öll í sumar. |
|
| 3 |
Dagsetning: 2004-05-20 21:16:06 Nína ( ninahafst@vortex.is / engin heimasíða) skrifaði: Bara rétt að prófa gestabókina! Nú stefnir í að það verði forsetakosningar 26.júní og þá verður að reyna að púsla þeim saman við ættarmótshaldið, verðum að vona að það gangi árekstralaust. Eins gott að þeir sem hafa horn í síðu þessa liðs sem verður að þvælast þarna á kosningadaginn frétti ekki að nokkur hópur á beinna hagsmuna að gæta í kosningunum og gæti tekið upp á því að vera með áróður á kjörstað! Heyrumst síðar. |
|
| 2 |
Dagsetning: 2004-05-20 19:41:17 Særún Ármannsdóttir ( ninahafst@vortex.is / engin heimasíða) skrifaði: Halló halló Hlakka til að hitta ykkur í sumar! |
|
| 1 |
Dagsetning: 2004-05-19 22:19:25 Guðmundur Hafsteinsson ( gudmh@mmedia.is / http://www.mmedia.is/~gudmh/foss) skrifaði: Þetta er tilraunafærsla, gerð til að kanna hvernig kerfið virkar og sýna hvernig skilaboðin koma fram. Látið heyra frá ykkur! |
|