Brynja
Brynja var hryssa, lítil, rauð að lit, hún var eign föður míns, Guðmundar Jónssonar. Nafnið var dregið af manni þeim er hún var keypt af, Brynjólfi.
Brynja var gott hross og eftirsótt af mörgum til eignar. Hún var ung er faðir minn eignaðist hana. Brynja var lítil eins og áður er getið, og hafði óbilandi viljaþrek til síðustu stundar. Svo var hún körg að lítt var að koma henni áfram ef hún hafði tekið fyrir sig að fara ekki, en það er hún vildi fara fór hún tíðast sem allra fremst í hópnum. Hún var illfeng við alla ókunnuga hesta, beit og barði þá frá sér. Svo var vont að ná í Brynju stundum að eigi var hægt að ná henni nema reka hana í urðir er hún eigi komst áfram, eða flækja hana í böndum.
Brynja var afbragðs skeiðhross. Svo vökur var hún að alltaf var miðað við Brynju ef einhver hestur þótti vakur. „Hann er nærri því eins og Brynja“, var sagt. Brynja var notuð bæði til áburðar og reiðar. Hún var lögð að velli haustið 1940, þá tuttugu og þriggja ára að aldri. Hún var farin að fá hósta ef hún var notuð eitthvað til muna.
Margir, sem til þekktu, munu minnast þessa góða og trygga þjóns, sem Brynja var, með sárum söknuði.
Milli manns og hests og hunds hangir leyniþráður.
Kristín Guðmundsdóttir
![]() |
Smellið á myndina til að sjá stílinn í heild! |
Eftirmáli
Í mars 2003 var farið í bæinn á Fossi og tekið til handargagns talsvert af bréfum o.fl., og meðal þess sem þá kom í leitirnar var þessi ritgerð Kristínar. Þetta gæti verið skrifað sem skólastíll þó ekki sjáist þess nein merki og eina tímasetningin er ártalið 1940 sem nefnt er í stílnum. Skrifað er með blýanti á línustrikaða örk og pappírinn er svo hreinn og óskemmdur að stíllinn gæti hafa verið skrifaður daginn áður en hann fannst.
Nokkrar smáleiðréttingar hafa verið gerðar, strikað yfir eitt og eitt orð og annað sett í staðinn eða skrifað ofan í það sem leiðrétt var, kannski ekki verið til strokleður. Ein veruleg breyting hefur verið gerð, strikað yfir nærri heila línu og annað sett í staðinn. Þar sem stendur: „Brynja var gott hross og eftirsótt af mörgum til eignar“, hafði upphaflega verið skrifað: „Brynja var engin afburða skepna í einu eða neinu“. Ætli eigandi Brynju hafi ekki lesið yfir og látið breyta þessu?
Stíllinn er hér alveg orðréttur eftir handritinu, aðeins lagfærð stafsetning og greinarmerki eftir því sem þurfa þótti.
J.H.

Foss að vetrarlagi
Kolaveiðar