Í fjörunni á Fossi

 

Flatey

Úr Flatey. Eyjólfshús á miðri mynd

Flatey tengist ættinni á ýmsan hátt. Má t.d. nefna að þau Guðmundur og Jóhanna, kona hans, bjuggu þar um tíma (rúmlega eitt ár?) eftir að búskap þeirra lauk í Sauðeyjum. Friðgerður kom þangað til þeirra vorið 1912 með Hafstein nýfæddan og var hjá þeim um hríð áður en hún fluttist að Haukabergi.

Guðmundur Jónsson var með fólk sitt í Eyjólfshúsi, þegar hann var í Flatey 1912-1913, skv. sóknarmanna-tali í Flateyjarsókn í janúar 1913. Það voru 7 manns í heimili: Auk hans og Jóhönnu konu hans voru þar Hafsteinn barn hans á 1. ári, Friðgerður og Ingibjörg Gestsdóttir vinnukonur og Þórarinn Gunnlaugur Jónsson vinnupiltur og Ólafur Jón Jónsson vinnumaður. Því fór fjarri að þau væru eina fólkið í húsinu, þar bjuggu tvær fjölskyldur aðrar, og voru íbúar hússins alls 20 þetta ár. Eyjólfshús er hvíta húsið á miðri myndinni hér að ofan.

Flatey í febrúar 2003

Flatey í febrúar 2003.

Það hefur oft verið kuldalegt að ferðast á opnum bátum milli Flateyjar og lands.

Tenglar þar sem finna má fróðleik um Flatey:

http://www.flatey.is/
http://www.vestfirdir.is/index.php?page=flatey
http://www.nave.is/flatey.htm

|  Umsjónarmaður vefsins   |
| Guðmundur Hafsteinsson |