Auglýsingar
Lesendum vefsins hefur um hríð staðið til boða að koma þar fyrir auglýsingum. Í fyrstu voru þær settar á sérstaka auglýsingasíðu en hefur nú verið komið fyrir í töflu neðst á forsíðu. Ef engar auglýsingar eru í gildi er taflan tóm.
Þeir, sem vilja koma auglýsingu á framfæri, senda umsjónarmanni auglýsingaskjal í tölvupósti, helst tilbúna, veftæka mynd (.gif, .jpg eða .png) sem ekki er miklu stærri en 700 dílar á kant. Ef umsjónarmaður telur æskilegt að breyta skjalinu áskilur hann sér rétt til þess en vonandi þarf ekki oft að koma til þess.
Umsjónarmaður kemur skjalinu fyrir á vefnum og setur krækju í það í töfluna neðst á forsíðu. Þar kemur einnig fram í örstuttu máli tilgangur auglýsingarinnar og nafn ábyrgðarmanns hennar og tengiliðs, annað hvort með símanúmeri eða tölvupóstkrækju. Ábyrgðarmenn auglýsinga ættu helst að vera afkomendur Friðgerðar og Guðmundar á Fossi.
Ekki er ætlast til að auglýsingar standi á vefnum til eilífðar. Rétt er að miða við einn mánuð sem hámarkstíma, þó má reyna að semja um lengri tíma. Auglýsingar á vefnum kosta ekkert enda er ætlast til að þær tengist fremur áhugamálum en atvinnu.
Ef upp kemur einhver vafi um hvernig túlka skuli þessa skilmála áskilur umsjónarmaður vefsins sér algjört einræðisvald!
Foss aš vetrarlagi
Kolaveišar