Ķ fjörunni į Fossi

 

Félagsheimilið Skjöldur

Félagsheimilið Skjöldur í Helgafellssveit er um 8 km frá Stykkishólmi. Í húsinu er gott eldhús með öllum búnaði og salur sem tekur 130 manns í sæti. Þá er stórt grill við húsið.

Tjaldstæði er við húsið og hafa tjaldgestir aðgang að salernum og sturtum í húsinu. Gjald fyrir gistingu á tjaldstæði var 500 kr. á mann hver nótt (15 ára og eldri).

Í húsinu er að finna um 60 dýnur en engin rúm. Eitt herbergi er í húsinu, um 5x5 metrar að stærð þar sem nokkrir gætu gist en aðrir yrðu að sofa í samkomusal. Fyrir svefnpokagistingu í húsinu var gjaldið 1.000 kr. á mann hver nótt.

Umsjónarmaður hússins hefur nokkra tjaldvagna til leigu. Að jafnaði eru þeir leigðir til viku í senn og var vikuleiga 23.000 kr. Hugsanlega væri hægt að semja um helgarleigu ef vagnar eru lausir. Þeir sem hafa hug á að leigja tjaldvagn ættu að hafa samband við umsjónarmann.

Benda má á vefsíðu Stykkishólmsbæjar til að fá ýmsar upplýsingar um Stykkishólm og hvað þar er í boði: http://www.stykkisholmur.is

Umsjónarmaður Félagsheimilisins Skjaldar er Agnar Jónasson, sími 438 1510. Hann lagði sig mjög fram um að leysa allan okkar vanda og voru samskipti við hann öll hin ánægjulegustu. Það má hiklaust benda þeim, sem leita að góðum stað fyrir ættarmót eða aðrar viðlíka samkomur, að ræða við Agnar Skjaldarbónda.

 

Myndir

Eins og sjá má á myndunum hér fyrir neðan, sem Gerður H. Hafsteinsdóttir útvegaði vefnum, er Félagsheimilið Skjöldur hið myndarlegasta hús og ekki þarf að kvarta yfir útsýninu!

 

Hvernig á að finna staðinn? Sjá kortið!

Kort af nágrenninu

Kortið er tekið af kortadiski Landmælinga Íslands

 

|  Umsjónarmašur vefsins   |
| Gušmundur Hafsteinsson |