Ættarmót á Reykhólum 18.-20. júlí 2008
Fimmta ættarmót fólksins frá Fossi var haldið á Reykhólum 18. til 20. júlí 2008. Í undirbúningsnefnd voru þau Friðgeir Guðmundsson, Gauti Eiríksson og Kristín Ármannsdóttir og stóðu sig prýðilega. Þeim ber öðrum fremur að þakka hvað mótið heppnaðist vel þótt gestrisið heimilisfólk á Stað og aldeilis frábært veður hafi vissulega hjálpað til. Þátttaka var allgóð en ekki er umsjónarmanni kunnugt um hve margir skrifuðu í gestabókina. Hefðbundinni myndatöku af ættleggjum var sleppt að þessu sinni svo ekki er hægt að nota þær myndir til að telja.
Helstu atriði á dagskránni voru heimsókn að Stað þar sem heimamenn buðu upp á kræsingar af miklum myndarskap. Farið var í gönguferð um Reykhóla undir ágætri leiðsögn Gauta Eiríkssonar. Þá var sameiginlegt borðhald og að lokum kvöldvaka þar sem megináhersla var lögð á að kynna yngri kynslóðum sögu systkinanna frá Fossi en þau eru nú öll fallin frá. Flutt voru stutt erindi um hvert systkinanna (sum voru reyndsar flutt fyrr um daginn í kirkjugarðinum á Stað) og þætti vefnum fengur að því að fá sem flest þeirra til birtingar.
Í lok kvöldvökunnar var tilnefnd ný ættarmótsnefnd. Hana skipa Hafsteinn Hafsteinsson, Jón Garðar Sigurvinsson, Friðgerður Benediktsdóttir, Rakel Guðmundsdóttir og Kristíana Kristjánsdóttir. Varla þarf að efast um að þetta úrvalsfólk muni standa undir væntingum og komu reyndar strax fram vísbendingar um að næsta ættarmót kynni að verða haldið eftir þrjú ár, tengt 120 ára afmæli Friðgerðar á Fossi.
Margir voru með myndavélar á lofti og virtust röskir við myndatökur. Nokkrir hafa komið myndum sínum fyrir á myndasíðum sem eru öllum opnar til skoðunar og eru þær síður sem umsjónarmanni er kunnugt um taldar upp hér fyrir neðan og má einnig nálgast þær með krækjum hér vinstra megin á síðunni. Þeir, sem luma á góðum myndum en ekki hafa komið sér upp myndasíðum á vefnum, ættu að senda umsjónarmanni línu.
Umsjónarmanni er kunnugt um eftirfarandi síður:
Umsjónarmaður vefsins vill að lokum þakka fráfarandi ættarmótsnefnd fyrir þann heiður sem honum og vefnum var sýndur og verður hvatning til að halda þessum vef úti eitthvað áfram. (29/8 2008)
Foss að vetrarlagi
Kolaveiðar