Kynning Verkefni Bjargir Ferli Mat Niðurstaða
Kynning
Vefleiðangur er hugsað sem leið fyrir fólk til að afla sér upplýsinga og til að æfa sig í að nota netið. Mínar fyrstu hugmyndir um vefleiðangur er að starfsmenn leikskólans nýti sér netið til að skoða stefnur og strauma í öðrum leikskólum. Nemendur leikskólans eru almennt ekki orðnir læsir og ekki erum við með tölvu sem kennslugagn enn sem komið er, þó það sé framtíðin. Ég er ekki á þeirri skoðun að það þurfi að vera einhvar keppni um að vera fyrstur.
Verkefni efst á síðu
Starfsmenn eiga að kynna sér ýmislegt í öðrum leikskólum. Efnið verða þeir að finna á vefnum, heimasíðum ýmissa leikskóla og á leikskólatölvuvefnum. Skipt er í fjóra hópa eftir deildum og hver deild vinnur þetta saman. Hver deild fær fjögur atriði til athugunar og kynnir svo niðurstöður fyrir starfsmönnun annara deilda. Verkefnið skal unnið fyrir starfsdag í apríl og kynnt á starfsdegi.
Bjargirefst á síðu
Farið inn á eftirfarandi krækjum og svarið spurningunum hér fyrir neðan og búið svo til kynningu. Þið getið unnið þetta á þann hátt að hafa netið opið í minnkuðum glugga og einnig Word skjal. Þegar þið hafið fundið svarið getið þið copyað og pasteað efnið yfir í Word skjalið. Hér finnið þið Leikskóla Reykjavíkur og getið rakið ykkur inn á heimasíður. Á þessari krækju er Kópavogur. Akureyri er svo ekki langt undan og þar þarf að finna út hvar er leikskóladeildin. Í gegnum Seltjarnarnes og Mánabrekku er hægt að komast inn á leikskólatölvuvefinn. Þar er ýmislegt fróðlegt um tölvur í leikskóla. Menntamálaráðuneytið hýsir aðalnámskrá leikskóla en þar finnur þú námsvið leikskóla.
Ferli efst á síðu
Gott væri að önnur eldri deildin tæki spurningar 1-4 og hin 5-8. Eins með yngri deildar önnur 1–4 og hin 5–8. Spurningu um söngtexta er svo beint til allra svar hópa.
- Finnið tvo leikskóla og berið saman dagskipulag, hvað er líkt/ólíkt.
- Finnið tvo leikskóla í sama sveitafélagi og berðu saman stefnu skólanna/uppeldisáherslur.
- Finnið tvo leikskóla sem hafa heimasíðu og eru með tölvustarf með börnunum. Berið saman áherslur í tölvustarfinu.
- Er minnst á Dewey í hugmyndafræði leikskólanna? Hvað er sagt um hann?
- Er minnst á einhvern annan uppeldisfrömuð og hvað er sagt um hann/þá?
- Eru matseðlar á heimasíðum, ef svo er berið saman matseðil mánaðarins þar og hjá okkur. Hvert er ykkar álit á því sem í boði er.
- Skoðið leikskólatölvuvefinn og gerið greinagerð til kynningar.
- Hver eru helstu námsvið leikskóla?
Finnið söngtexta á heimasíðum eða í krækjum frá þeim og bendið á áhugaverðan nýjan texta til að syngja næst þegar þín deild stjórna vinastund.
Mat efst á síðu
Vonast er til að þessi leikur verði til að vekja áhuga starfsmanna á því efni sem hægt ar að nálgast á vefnum og hann auki fróðleik, samvinnu og gleði starfsmanna. Ekki verður að sinni lagt mat á frammistöðu starfsmanna en rík áhersla á að allir taki þátt.
Niðurstaða efst á síðu
Nú hafa allir starfsmenn deilda fengið tækifæri til að vinna örlítið í tölvum eða að minnsta kosti fylgjast með. Það er mjög mikilvægt að þeir sem ekki hafa áður fiktað í tölvunum fái aðeins að spreyta sig vegna þess að á þessu ári verður tölvum fjölgað í skólanum og hún kemur inn á einhverjar deildir. Þessi litla þátttaka verður gott veganesti til framtíðar. En fullorðnir læra einmitt með svona samvinnu og rólegri æfingu. Þarna gefst líka gott tækifæri til að afla sér fróðleiks og velta hlutunum fyrir sér hér í okkar húsi. Ekki verður æfingin síðri sem fólk fær þegar það fer með kynningu fyrir samstarfsmenn. Það verða sem sagt slegnar nokkrar flugur í einu höggi.
© 2003 LiljaÓlafsdóttir 17-may-03