|
Tækninotkun Lilju Bjarkar | |||||||||||||||
Fyrstu kynni af tölvum voru leikjatölvur barnanna minna ekki fannst mér það spennandi tæki og þegar ég prófaði græjurnar var ég þvílíkur klaufi að ég gafst upp eins og skot. Ég var miklu flinkari að sauma og prjóna og dundaði mér frekar við slíka iðju. Tækninotkun og tölvuraunir. Notkun mín á tölvum hófst árið 1993 þegar ég fór í framhaldsnám í Fósturskóla Íslands. Ég notaði þá tölvu í ritvinnslu og það gekk á ýmsu. Annað heimilisfólk þurfti að vera nánast við hliðina á mér eða að minnsta kosti í kallfæri. Öll vinna dagsins gat dottið út vegna þess að komið var óvart við einhvern takka og þá þurfti að redda málunum. Það gekk allt á afturfótunum. Græjan var gömul notuð tölva með diskettu. En ég komst þó í gegnum námið til guðslukku. Eftir að ég byrjaði í núverandi starfi 1996 hef ég notað tölvu í vinnunni. Þar fór ég að nota tölvupóst og slík samskipti. Ég hef ekki mikið notað tölvupóst til samskipta utan vinnunnar. Í vinnunni hef ég aðllega notað tölvu til að skrá ýmislegt tengt vinnunni og til að gera ýmiss konar töflur og slíkt dót. Færnin er þó alltaf að aukast. Tölvunám hefur aðallega verið tengt vinnunni. Fyrsta námskeiðið hef ég samt að mig minnir keypt sjálf. Síðan hefur smátt og smátt verið í boði námskeið í vinnunni mér að kostnaðarlausu. Tæknieign mín er ein borðtölva og prentari sem henni fylgir. Í byrjun mars 2003 var fjárfest í fartölvu og setið við til að æfa sig. Þá er næst að fjárfesta í þráðlausu kerfi til að nota á heimilinu svo ekki fylgi manni óteljandi snúrur. Hér er þráðlaus sími. Allt heimilisfólk með gemsa, ég nota minn samt aðallega til að ná í samferðafólk ef ég er einhvers staðar utan heimilis, annars er alltaf slökkt á gemsanum. Til marks um það þá var símareikningurinn síðast 65 krónur. Við eigum videoupptökuvél sem líka er hægt að taka kyrrmyndir á. Ekki hef ég lagt mig fram við að læra á þá græju ennþá en það fer að líða að því að reyna slíkt. © 2003 Lilja Björk Ólafsdóttir 17-may-03 |
|
|||||||||||||||