Ég er nú orðin svo upptekin af tölvutækninni í dag að ég held að ekki líði langur tími þar til ég verð komin með þráðlausa fartölvu inn á heimilið. Það var bæklingur um þráðlaust heimili á eldhúsborðinu hjá mér 15. febr. 2003. Ekki hafði ég leitt hugann að slíku fyrirbæri fyrr en daginn þann.
Eftir svo sem tíu á verður allt annar bragur á þessu en nú. Þá verða fartölvur fyrir hvern heimilismann líkt og nú er kominn GSM sími í hendur svo margra sem komnir eru yfir fermingu. Fartölvurnar verða léttar og meðfærilegar, fyrirferðarlitlar og hagnýtar. GSM símarnir eru nú orðnir lófastórir og fisléttir. Fartölvurnar þróast í sömu átt.
Ég hef þá trú að ekki verði þessar stóru tölvur inni á borðum heimilanna. Önnur hliðartæki sem fylgja tölvum í dag verða í notkun eins og hvert annað nauðsynlegt tæki. Skanni verður ef til vill ekki nauðsynlegur vegna þess að stafræna myndavélin fylgir tölvunni. Prentarar verða hugsanlega ekki heldur nauðsynlegir vegna þess að allir hafa aðgang að tölvum og lesa bara gögnin þar. Flytja þau á milli í tölvunni og senda hver öðrum það sem við á hverju sinni.
Myndavélar verða stafrænar og stór hluti fólks farinn að vinna sínar myndir heima. Það er nú verið að skoða hvernig eða hvar slík tæki eru nýtt í leikskólum. Þið fyrirgefið mér ég er dálítið upptekin af því skólastigi.
© 2003 Lilja Ólafsdóttir 17-May-2003
Framtíðarsýn í tölvumálum.
Hvert stefnir í tölvumálum að mati Lilju Bjarkar.